Skaut óvart íkorna til bana með golfkúlu

Heimir Karlsson útvarps­maður veiktist lífs­hættulega og fann sér aðra íþrótt en knatt­spyrnu. Náði holu í höggi í Tyrklandi og erni í Banda­ríkjunum, en drap óvart íkorna.

Golfarinn
Golfar­inn Heimir Karlsson athafnar sig við erf­iðar aðstæður. Golfarar geta lent í alls­konar aðstæðum sem þeir þurfa að vinna sig út úr. Mynd: Heimir Karlsson

„Mér var óskaplega brugðið enda þykir mér vænt um dýr og vil síst af öllu meiða neitt þeirra,“ segir Heimir Karlsson, útvarps­maður í Bítinu á Bylgjunni. Hann er nýkominn úr golfferð til Banda­ríkjanna ásamt félögum sínum. Ferðin var minnis­stæð fyrir tvennt aðallega. Hann fékk örn og banaði íkorna.

„Þetta var agjörlega óvart. Ég var að bogra undir tré við að skjóta golf­kúlunni og sá ekki íkornann fyrr en of seint. Þá hafði ég skotið í dýrið,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár