Sjóðir kirkjunnar fá meira en Útlendingastofnun

Á næsta ári greiðir íslenska ríkið alls 702,6 millj­ónir í starf­semi Þjóð­kirkj­unnar sem stendur utan við bæði kirkju­jarða­sam­komu­lagið og sókn­ar­gjöld. Til sam­an­burðar gera fjár­lög ráð fyrir að íslenska ríkið muni verja 434,8 millj­ónir í Grein­ingar- og ráð­gjaf­ar­stöð rík­is­ins, en þar eru nú um 400 börn á biðlista eftir grein­ingu, og 256,2 millj­ónum í rekstur Útlend­inga­stofn­unar.

Sjóðir kirkjunnar fá meira en Útlendingastofnun

Fjár­veit­ingar rík­is­ins til Þjóð­kirkj­unnar eru sagðar hvíla á tveimur stoðum; sókn­ar­gjöldum ann­ars vegar og hins vegar kirkju­jarða­sam­komu­lag­inu svo­kall­aða. Kirkju­jarða­sam­komu­lagið var und­ir­ritað árið 1997 en það má rekja aftur til árs­ins 1907 þegar ríkið tók yfir stærstan hluta af jörðum kirkj­unnar. Á móti myndi rík­is­sjóður greiða laun bisk­ups Íslands, vígslu­bisk­upa, 138 starf­andi presta og pró­fasta kirkj­unnar og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu, annan rekstr­ar­kostnað prests­emb­ætta og Bisk­ups­stofu. Einnig skyldi greiða árlegt fram­lag í Kristni­sjóð sem svar­aði til 15 fastra árs­launa presta. 

Auk sókn­ar­gjalda og kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins greiðir íslenska ríkið hins vegar fyrir rekstur kirkju­garða auk tveggja sjóða; kirkju­mála­sjóðs og jöfn­un­ar­sjóðs sókna. Greiðslur í alla þessa sjóði koma úr vösum skatt­greið­enda á Íslandi, þar með talið þeirra sem til­heyra öðrum trú­fé­lögum eða standa utan trú­fé­laga. 

Kirkju­mála­sjóður var stofn­aður árið 1993 og er honum ætlað að standa straum af kostn­aði vegna við­halds prests­setra. Þá kostar hann kirkju­þing, kirkju­ráð og presta­stefnu, fjöl­skyldu­þjón­ustu kirkj­unnar, söng­mála­stjórn og tón­list­ar­fræðslu á vegum Þjóð­kirkj­unnar og starfs­þjálfun guð­fræði­kandídata, auk ann­arra verk­efna sem ekki eru skil­greind nánar í lögum. Fjárlög næsta árs gera ráð fyrir 293,3 millj­ónum króna í Kirkju­mála­sjóð.

Hlutverk Jöfn­un­ar­sjóðs sókna er að veita styrki til þeirra kirkna sem sér­stöðu hafa umfram aðrar sókn­ar­kirkjur, að leit­ast við að jafna aðstöðu og styrkja sóknir þar sem lög­mætar tekjur, sókn­ar­gjöld, nægja ekki fyrir nauð­syn­legum útgjöldum og í þriðja lagi að auð­velda stofnun sókna í nýjum byggða­hverfum og að styðja kirkju­lega félags- og menn­ing­ar­starf­semi. Þrátt fyrir að fjár­mögnun sjóðs­ins komi beint úr rík­is­sjóði er sjóð­ur­inn ein­göngu til ráð­stöf­unar innan Þjóð­kirkj­unnar. Árið 2006 fór Ása­trú­ar­fé­lagið í mál við íslenska ríkið vegna greiðslna úr Jöfn­un­ar­sjóði sókna. Félagið tap­aði mál­inu, en hér­aðs­dómur komst samt sem áður að þeirri nið­ur­stöðu að Jöfn­un­ar­sjóður sókna geri upp á milli trú­fé­laga, þótt að greiðslur úr honum séu ákvarð­aðar með lögum. Ása­trú­ar­fé­lagið áfrýj­aði mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, en því var vísað frá árið 2012. Samkvæmt fjár­lögum renna 379,3 millj­ónir í Jöfn­un­ar­sjóð sókna á næsta ári. 

Á næsta ári greiðir íslenska ríkið því alls 702,6 millj­ónir í starf­semi Þjóð­kirkj­unnar sem stendur utan við bæði kirkju­jarða­sam­komu­lagið og sókn­ar­gjöld. Til sam­an­burðar gera fjár­lög ráð fyrir að íslenska ríkið muni verja 475,9 millj­ónum í mál tengd hæl­is­leit­endum á næsta ári, rekstur Útlend­inga­stofn­unar kostar 256,2 millj­ónir, Grein­ingar- og ráð­gjaf­ar­stöð rík­is­ins fær 434,8 millj­ónir, en þar eru nú um 400 börn á biðlista eftir grein­ingu, og Sam­keppn­is­eft­ir­litið verður rekið fyrir 439,8 millj­ónir króna.

Ítarlega úttekt á Þjóð­kirkj­unni má lesa í heild sinni í prentút­gáfu Stund­ar­innar. Hægt er að nálg­ast áskrift hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár