Listinn yfir styrkveitendur Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðis­flokkurinn slær öllum stjórn­málaflokkum landsins við þegar það kemur að styrkjum frá einka­fyrirtækjum. Rúmlega áttatíu fyrir­tækja styrktu Sjálfstæðis­flokkinn á síðasta ári en flokkurinn er sá ríkasti á landinu með eigið fé upp á 352 milljónir króna.

Sjálfstæðis­flokkurinn fékk tæpar tuttugu milljónir króna í styrki á síðasta ári frá yfir áttatíu einka­fyrirtækjum. Til saman­burðar studdu 38 fyrirtæki Framsóknar­flokkinn á síðasta ári fyrir tæpar 11 milljónir og tuttugu fyrirtæki Samfylkinguna fyrir tæpar tíu milljónir. Þá er Sjálfstæðis­flokkurinn lang­ríkasti stjórn­málaflokkur landsins með eigið fé upp á rúmar 352 milljónir króna.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í útdrætti ársreiknings Sjálfstæðis­flokksins sem Ríkis­endurskoðun hefur birt á vefsíðu sinni.

Samkvæmt rekstrar­reikningi fyrir árið 2015 lækkaði beinn rekstrarkosnaður vegna flokksins um rúmar áttatíu milljónir króna á milli ára, frá 241 milljón króna í 158 milljónir króna. Lækkunina má rekja sveitar­stjórnar­kosninga sem fram fóru árið 2014.

Athygli vekur að enginn einn einstaklingur styrkti flokkinn umfram 200 þúsund krónur en allir þeir sem styrkja stjórn­málaflokk um meira en 200 þúsund krónur þurfa að vera nafn­greindir í ársreikningi flokkanna. Félags­gjöld og framlög innan þessara marka voru hinsvegar tæpar þrjátíu milljónir króna. Þá voru aðrar tekjur flokksins 69,6 milljónir króna en þar af voru 23 milljónir vegna auglýsinga og þjónustu sem flokkurinn seldi út.

Framlög lögaðila:

  • 101 Reykjavík fasteigna­sala ehf. 30.000
  • 1912 ehf. 300.000
  • AKSO ehf. 200.000
  • Alexander Ólafsson ehf. 250.000
  • Alfa hf. 100.000
  • Álftavík ehf. 200.000
  • Arctica Eignarhalds­félag ehf. 200.000
  • Arctica Finance hf. 200.000
  • BL ehf. 400.000
  • Borgun hf. 250.000
  • Brekkuhús ehf. 400.000
  • Brim hf. 400.000
  • Brimrún ehf. 250.000
  • BSR ehf. 25.000
  • Byggingar­félag Gylfa/Gunnars hf. 400.000
  • Cargo flutningar ehf. 200.000
  • Deloitte ehf. 100.000
  • Dexta orku­tækni­lausnir ehf. 40.000
  • Eik fasteigna­félag hf. 50.000
  • Ferro Zink hf. 50.000
  • Gallery Viðey sf. 30.000
  • GAM Management ráðgjöf ehf. 400.000
  • Gjögur hf. 400.000
  • Guðmundur Arason ehf. 50.000
  • Gullberg ehf. 250.000
  • HB Grandi hf. 400.000
  • Henson Sports Europe á Ísl ehf. 30.000
  • Höldur ehf. 100.000
  • Hólmagil ehf. 100.000
  • Hrað­frystihús Hellis­sands hf. 200.000
  • Hrað­frystihúsið - Gunnvör hf. 400.000
  • Húsanes Verktakar ehf. 200.000
  • Hvalur hf. 400.000
  • Icelandair Group hf. 400.000
  • Icelandic Water Holdings hf. 400.000
  • Internet á Íslandi hf. 190.000
  • ÍSAM ehf. 400.000
  • Ísfélag Vestmanna­eyja hf. 400.000
  • Íslands­hótel hf. 150.000
  • Juris slf. 400.000
  • Kaupfélag Skagfirðinga 350.000
  • KEA svf. 100.000
  • KG Fiskverkun ehf. 200.000
  • Kjaran ehf. 100.000
  • Kjörís ehf. 50.000
  • KPMG ehf. 300.000
  • Krossanes eignir ehf. 200.000
  • Kvika banki hf. 400.000
  • Lista­safnið Hótel Holt ehf. 50.000
  • Lýsi hf. 400.000
  • Mannvit hf. 400.000
  • MD vélar ehf. 100.000
  • N1 hf. 300.000
  • Nordic Holding ehf. 250.000
  • Oddi hf. 50.000
  • Ögurvík ehf. 300.000
  • Ólafur Þorsteinsson ehf. 150.000
  • Öldudalur ehf. 300.000
  • Örninn Hjól ehf. 50.000
  • Öryggis­girðingar ehf. 10.000
  • Prentsmiðjan Oddi ehf. 100.000
  • Rafstjórn ehf. 25.000
  • Rammi hf. 400.000
  • Reginn hf. 400.000
  • Reykja­prent ehf. 100.000
  • Rolf Johansen & Co ehf. 400.000
  • Samherji Ísland ehf. 400.000
  • Samskip hf. 200.000
  • Sigla ehf. 200.000
  • Síldar­vinnslan hf. 400.000
  • Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 350.000
  • Skinney-Þinganes hf. 150.000
  • Skóla­matur ehf. 50.000
  • Snæból ehf. 200.000
  • Soffanías Cecilsson hf. 25.000
  • Sonja ehf. 199.999
  • Steypu­stöðin ehf. 150.000
  • SÞ Þorláks­Höfn ehf. 50.000
  • Tækni­vörur ehf. 250.000
  • Þorbjörn hf. 300.000
  • Þórsnes ehf. 100.000
  • Trygginga­miðstöðin hf. 400.000
  • Vélvík ehf. 250.000
  • Vinnslu­stöðin hf. 200.000
  • Vísir hf. 400.000
  • Vörður tryggingar hf. 150.000

Samtals:                     19.254.999

Framlög sveitarfélaga:

  • Akra­nesbær 412.836
  • Akureyrar­kaupstaður 522.824
  • Garðabær 2.058.576
  • Hafnar­fjarðarbær 60.000
  • Hafnar­fjarðar­kaupstaður 1.578.995
  • Hvera­gerði 204.600
  • Kópa­vogsbær 2.524.154
  • Mosfellsbær 841.679
  • Reykja­nesbær 1.422.907
  • Reykjavík 6.575.000
  • Styrkur frá Seltjarnar­nesbæ  551.020
  • Sveitar­félagið Ölfus 308.571
  • Sveitar­félagið Horna­fjörður 279.075
  • Sveitar­félagið Skaga­fjörður 107.000
  • Vestmannaeyjabær 146.400

 

Samtals:                             17.593.637

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár