Reyndi að stofna stjórnmálaflokk einn síns liðs mánuði fyrir kosningar

Þormar Jónsson gerði heið­ar­lega til­raun til þess að stofna stjórn­mála­flokk­inn Fram­fara­flokk­inn ein­ungis mán­uði fyrir kosn­ingar. Fram­boð­inu var sjálf­hætt þegar eng­inn mætti á stofn­fund.

Reyndi að stofna stjórnmálaflokk einn síns liðs mánuði fyrir kosningar
Þormar Jónsson gerði heið­ar­lega til­raun til að stofna stjórn­mála­flokk mán­uði fyrir kosn­ingar. Mynd: Kristinn Magnússon

Rúmum mán­uði fyrir kosn­ingar kynnti Þormar Jónsson Fram­fara­flokk­inn til leiks fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar og fékk úthlutað lista­bók­stafnum N. Þormar kom einn að stofnun flokks­ins og var engin verk­efna­stjórn mynduð um und­ir­bún­ing­inn eða mál­efna­vinnu flokks­ins. Þormar hugð­ist bjóða fram lista í öllum kjör­dæmum og leigði sal á Hótel Nordica Hilton fyrir stofn­fund­inn sem hald­inn var um síð­ustu helgi. Fram­boð­inu var hins vegar sjálf­hætt þegar eng­inn mætti á stofn­fund flokks­ins. 

„Ég er búinn að slá þetta af,“ segir Þormar í sam­tali við Stundina. „Ég hélt ég gæti fengið eitt­hvert hug­sjóna­fólk til þess að vinna þetta með mér, en fólk kom ekki. Þessu er því sjálf­hætt.“

Þormar seg­ist í sam­tali við Stundina í síð­ustu viku ekki hafa áhyggjur af því að flokk­ur­inn sé að koma of seint fram á sjón­ar­sviðið og stefndi ótrauður á að bjóða fram í öllum kjör­dæmum. Hann sagð­ist bjart­sýnn á að fram­boðið myndi vekja athygli á vik­unum fyrir kosn­ingar. „Ég er búinn að vera að und­ir­búa þetta í hálft ár og ef maður finnur tvo, þrjá góða í hverju kjör­dæmi þá er fljótt að tín­ast inn á lista,“ sagði Þormar. Nú hefur hann hins vegar lagt árar í bát. 

Vaknaði upp á nóttunni og hugsaði um stjórnmál

Þormar seg­ist hafa reitt fram rúma milljón króna úr eigin vasa fyrir fram­boðið. Pen­ing­ur­inn fór meðal ann­ars í heil­síðu­aug­lýs­ingar í Morg­un­blað­inu og leigu á salnum á Hótel Nordica Hilton. „Ég fórn­aði mér alveg í þetta,“ segir hann. 

Aðspurður hvers vegna hann ákvað að fara af stað í þetta ævin­týri segir Þormar: „Ég veit ekki hvort það eigi að kalla það köllun. Fyrir um ári síðan 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár