Reyfarakennd skattrannsókn í Þýskalandi

Hundruð millj­óna evra voru end­ur­heimtar eftir kaup á gögnum um skattaund­an­skot frá Sviss.

Reyfarakennd  skattrannsókn  í Þýskalandi

Í sam­hengi við mögu­leg kaup skatt­rann­sókn­ar­stjóra á gögnum um skattaund­an­skot hefur mikið verið rætt um kaup þýskra yfir­valda á sam­bæri­legum gögnum. Sagan á bak við þau er öll reyfara­kennd og hvergi nærri óum­deild í Þýska­landi. Um er að ræða nokkur kaup af mis­mun­andi sölu­að­ilum, en eitt mál frá árinu 2007 er vís­ast best þekkt. Það ár afrit­aði Sina Lapour, aðstoð­ar­maður banka­starfs­manns við Credit Suisse, með blaði og blý­anti nöfn mögu­legra skattsvik­ara af innra vef tölvu­kerfis bank­ans. Þessi aðgerð hafði afdrifa­rík áhrif og varð til þess að Lapour var dæmdur í fang­elsi í Sviss, milli­liður hans framdi sjálfs­morð með sjón­varps­kapli og rass­íur voru fram­kvæmdar í skrif­stofum Credit Suisse í Þýska­landi. Ekki er fylli­lega ljóst hve mikið fé end­ur­heimt­ist en ljóst er að um hund­ruð millj­óna evra var að ræða. 

Vildi milljarð

Margt í mál­inu er óljóst en ýmis gögn sem lögð voru fram við rétt­ar­höld Lapour varpa ljósi á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár