Ónefndi Íslendingurinn deildi skilaboðum um leigumorðingja skömmu fyrir hvarf Friðriks

Íslend­ingurinn í Paragvæ sem vitni segir hafa sýnt höfuð Friðriks Kristjáns­sonar á Skype deildi mynd á Facebook þar sem kvartað er undan vöntun á leigu­morðingja, aðeins nokkrum dögum áður en Friðrik hvarf.

Hvarf í Suður-Ameríku
Hvarf í Suður-Ameríku Friðrik Krist­jáns­son var á leið til Paragvæ þegar síð­ast heyrð­ist af honum, allt þar til Íslend­ingur í Amster­dam vitn­aði um að hafa séð höfuð hans á Skype í sam­tali við ónefndan Íslend­ing.

Tveimur dögum áður en mikilvægt vitni í hvarfi Friðriks Kristjáns­sonar segist hafa séð höfuð hans, illa farið í glærum plastpoka, í samtali á Skype, birti ónefndi Íslend­ingurinn, sem sagður er hafa haft höfuð Friðriks undir höndum, óhugnarleg skilaboð á Facebook-vegg sínum. 

Ónefndi maðurinn, sem er ekki nefndur á nafn í umfjöllun Stundarinnar af lögfræði­legum ástæðum, deildi mynd á Facebook-síðu sinni með textanum: „Deildu þessu ef þú þekkir einhvern sem er á lífi því þú hefur ekki efni á leigu­morðingja.“ 

Reyndi að ná í kærustu sína

Friðrik hvarf vorið 2013 og er vitað að leið hans lá til Paragvæ. Seinast heyrðist frá honum við landamæri Brasilíu og Paragvæ þar sem hann hugðist sækjast eftir „viðskipta­tækifæri“. Þann 31. mars 2013 reyndi Friðrik þrisvar sinnum að hringja í kærustu sína, Cötiu Andreia, samkvæmt frásögn hennar í grein í prent­útgáfu Stundarinnar um málið. „Frikki hringdi þrisvar sinnum í mig með stuttu millibili. Hann hefur aldrei gert það áður. Það eina sem mér dettur í hug er að einhver örvænting hafi gripið um sig þegar hann reyndi að hringja í mig. Eitthvað rosalegt var að gerast. Eitthvað ekki gott. Ég hugsa oft um það hvað ef ég hefði svarað, hvað hefði gerst og hvað hefði Frikki sagt?“

Samkvæmt frásögn Íslend­ings, sem búsettur var í Hollandi og var í sambandi við Friðrik vegna viðskiptanna, átti hann samtal við ónefnda Íslendinginn í Paragvæ daginn eftir, sem samkvæmt vitnis­burði Jóns, sagðist hafa „ákveðið að drepa Friðrik“. 

Birtist stuttu fyrir hvarf Friðriks
Birtist stuttu fyrir hvarf Friðriks Stöðu­uppfærsla bæði ónefnda Íslend­ingsins og þess sem við köllum Jón í Amsterdam eru óhugnarleg. Takið eftir dagsetningunum sem hafa verið merktar með rauðum hring.

Vitnið í Amsterdam, sem Stundin hefur kallað „Jón“ í umfjöllun sinni, vitnaði um samtal sitt á Skype hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu. Eftir að hafa séð hryllinginn á Skype ákvað hann að fara frá Amsterdam til Íslands og bað lögreglu um að fá að fara í fangelsi og afplána dóm sem hann átti eftir að sitja af sér.

„Vá hvað þið eruð sjúk“

Tveimur dögum eftir samtalið á Skype ákvað vitnið í Amsterdam að skrifa ummæli undir deilingu ónefnda Íslend­ingsins á myndinni þar sem hann segist vilja einhvern feigan. 

Stuttu eftir að ummælin birtust undir færslunni var henni eytt. Stundin hefur færsluna undir höndum:

„Vá hvað thid erud sjúk. Thú tharnna helvitis ogedslega skitseidid thitt [NAFN FJARLÆGT] hvad varstu ad spa thid hinn ættud ad óttast mig meir en ég ykkur. Thad voru ekki thid sem sáuð hausin a felaga ykkar inn í minibar. Jaja mer er alveg sama hvad eg er ad segja. Augad hékk úr hausnum á honum kjálkinn möllbrotin. Gulur vökvi kom úr mænuni tegar hann hjó hann af med bitlausri svedjuni. Bara halló. frikki stod vid allt eins og stafur i bok,“ skrifaði sá sem í umfjöllun Stundarinnar var kallaður Jón.

Friðrik Kristjánsson hafði dvalið hjá vitninu í Hollandi í byrjun árs 2013 og alveg þar til hann flaug út í sína hinstu ferð.

„Afhverju gerdiru thad ekki vid einhvern sem er buinn ad vera ræna tig asnin thinn. Munidi eftir operation orange. Eg komst nu heldur betur af tví hver var buinn ad vera tala. T.d. Der kinderenstraat. Lögfrædingurinn minn fekk ad vita allt. [KVENMANNSNAFN FJARLÆGT] sparadi ekki ordinn,“ segir Jón og heldur áfram: „Eg vidurkenni tad sem eg geri og hef alltaf gert og ju [NAFN FJARLÆGT] eg tilkynnti thetta til logregluna eins og thu veist. Thu ert buinn ad fucka mer upp og ollu sem vid vorum ad gera. Helduru eg vilji taka thatt i svona ogedi. tar skjalladist ter Ástædan fyrir tvi eg hræddist tig ekki shit er su ad gafadi mordinginn hefdi sagt nei hann hefur ekki komid. Hann frikki. Eg fer i fjölmidla fljottlega og segi theim hvernig thetta var. Sjuki djofull fara svo med hausin i bakpoka a burger king og thykkjast gleyma bakpokanum. Og lest afgreidslustelpuna rett a ther bakpokan.“

Lögreglan veit af skilaboðunum

Það sem Jón vísar til í lok skila­boðanna er höfuð Friðriks Kristjáns­sonar. Samkvæmt heimildum Stundarinnar vita lögreglu­yfirvöld af þessum skila­boðum á Facebook. Þá hafi yfir­völdum einnig borist upplýsingar um að hluta af líkams­leifum Friðriks hafi verið komið fyrir í einum af rusla­gámum skyn­bitastaðar í Paragvæ. Sama skyndibita­staðar og vitnið í Amsterdam vísar til í skila­boðum sínum á Facebook.

Ónefndi Íslend­ingurinn er sagður hafa greint vinum sínum frá þessu, meðal annars Jóni sjálfum. 

Leita enn Friðriks

Lögregla, fjöl­skylda og vinir Friðriks Kristjáns­sonar standa enn í leit að Friðriki. Þau hafa ekki gefið upp alla von um að vísbendingar um hvarf Friðriks berist yfir­völdum. Þau bíða og hvetja alla til þess að stíga fram sem telja sig hafa upplýsingar um hvarfið.

Lögreglu­yfirvöld hér á landi höfðu leitað að Guðmundi Spartakusi Ómarssyni vegna málsins í rúm þrjú og hálft ár, eða frá því Friðrik hvarf í Paragvæ í Suður-Ameríku árið 2013, þegar hann birtist skyndi­lega hér á landi fyrr í vetur. 

Guðmundur Spartakus Ómarsson
Guðmundur Spartakus Ómarsson Stundin hefur ítrekar reynt að ná tali af honum í tengslum við hvarf Friðriks en ekki haft erindi sem erfiði.

Ítarlega er fjallað um hvarf Friðriks í nýjasta tölublaði Stundarinnar. Umfjöllunina má lesa í heild sinni hér: Farvegur fíkni­efnanna endaði með hryllingi.

Stundin hefur á undan­förnum vikum ítrekað reynt að ná tali af Guðmundi Spartakusi vegna málsins en án árangurs. Haft var samband við fjölskyldu­meðlimi, vini og reynt var að koma skila­boðum til hans í gegnum lögfræðing hans, Vilhjálm H. Vilhjálmsson, sem hefur sent kröfubréf á fjölda fjölmiðla vegna umfjöllunar um fréttir í Suður-Ameríku þar sem Guðmundur Spartakus er bendlaður við viðskipti með fíkniefni. 

Vilhjálmur hafnaði því að hjálpa til við að ná sambandi við Guðmund Spartakus, þegar Stundin hafði samband við hann, og hótaði lögsókn ef nafn umbjóðanda hans myndi birtast í umfjölluninni. Um hvarf Friðriks verður þó ekki skrifað án þess að minnast á nafn Guðmundar Spartakusar sem talið hefur verið að búi yfir upplýsingum sem geti varpað ljósi á hvarfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Friðriks Kristjánssonar

FréttirHvarf Friðriks Kristjánssonar

Sverrir Þór finnst ekki í fangelsi í Brasilíu

Sverrir Þór Gunnarsson, Sveddi tönn, sem í nóvember árið 2012 var dæmdur í 22 ára fangelsi í Brasilíu fyrir smygl á tæpum 50 þúsund e-töflum og er talinn einn af höfuð­paurunum í alþjóð­legum smygl­hring, virðist vera horfinn í Suður-Ameríku. Einn af þeim sem sagður er samstarfs­maður Sverris og talinn hafa mikil­vægar upplýsingar um hvarf Friðriks Kristjáns­sonar, Guðmundur Spartakus Ómarsson, fór af landi brott á dögunum.
RannsóknHvarf Friðriks Kristjánssonar

Farvegur fíkni­efnanna endaði með hryllingi

Friðrik Kristjánsson, vinsæll og efnilegur ungur maður úr Garðabæ, hvarf sporlaust í Paragvæ eftir að hafa ánetjast fíkni­efnum. Íslend­ingur, sem búsettur var í Amsterdam, greindi lögreglu frá því að hann hefði séð ónefndan Íslending halda á afskornu höfði hans í samtali á Skype og hrósa sér af því að hafa myrt hann. Lögreglan í Reykjavík hefur nú handtekið og yfirheyrt einn mann vegna málsins.

38 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár