Ólöf Nordal sýndi einlæga virðingu og naut virðingar þvert á stjórnmálaflokka

Ólöf Nordal er kvödd af ein­lægum sökn­uði eftir feril og lífs­hlaup sem skap­aði henni virð­ingu og vel­vild. Einn þeirra fyrr­ver­andi þing­manna sem hafa reynslu af störfum Ólafar Nordal lýsir þeirri ein­lægu virð­ingu sem hún sýndi, „ekki þess­ari virð­ingu sem okkur er öllum skylt að sýna, heldur langt umfram nokkrar kröfur þings eða þjóðar“.

Ólöf Nordal sýndi einlæga virðingu og naut virðingar þvert á stjórnmálaflokka

Þing­fundi hefur verið frestað á Alþingi og þing­menn úr öllum flokkum kveðja Ólöfu Nordal, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem lést í morgun á Land­spít­al­anum, aðeins fimm­tug að aldri.

„Hún hlust­aði, íhug­aði af ein­lægni það sem var sagt og svar­aði af raun­veru­legri virð­ingu; ekki þess­ari virð­ingu sem okkur er öllum skylt að sýna, heldur langt umfram nokkrar kröfur þings eða þjóðar,“ skrifar Helgi Hrafn Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata. Hann er einn hinna fjöl­mörgu sem votta Ólöfu virð­ingu sína á sam­fé­lags­miðlum í dag. „Hún var lagin og víð­sýn og kunni þá list að leiða saman ólík sjón­ar­mið í far­sælan far­veg. Fyrir það er þakkað á þess­ari sorg­ar­stundu,“ skrifar Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna.

Jón Gunn­ars­son, sam­göngu­ráð­herra, tjáir sig einnig um Ólöfu Nordal: „Ólöf var ein­stök kona í svo mörgu til­liti. Mér er efst í huga þakk­læti fyrir ómet­an­lega vin­áttu og traust. Þroski hennar á hinum póli­tíska vett­vangi sem og í líf­inu sjálfu hefur kennt mér, sem og öðrum sam­ferð­ar­mönnum hennar, mikið. Fráfall vin­konu minnar er ótíma­bært og erfitt að sætta sig við. Hugur minn er hjá ynd­is­legri fjöl­skyldu hennar, hjá þeim er miss­ir­inn mestur. En minn­ing hennar er leið­ar­ljós sem lýsir og leið­beinir í gegnum erf­iða tíma. Hún mark­aði djúp og ákveðin spor hvar sem hún steig niður fæti, ein­stök mann­eskja að svo mörgu leyti.“

Fjölbreyttur ferill

Ólöf lætur eftir sig fjögur börn og eig­in­mann. Hún hafði barist við krabba­mein frá árinu 2014, en virt­ist hafa sigr­ast á sjúk­dómnum. Um síð­ustu ára­mót minnti hún fólk á að „njóta hvers ein­asta augna­bliks“ í nýárs­kveðju sinni á Facebook.

Ólöf fædd­ist í Reykja­vík 3. des­em­ber 1966, dóttir Jóhann­esar Nordal, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, og Dóru Guð­jóns­dóttur Nordal píanó­leik­ara. Ólöf hlaut stúd­ents­próf frá MR 1986 og lauk lög­fræði­prófi frá Háskóla Íslands 1994. Árið 2002 lauk hún einnig MBA-prófi frá Háskól­anum í Reykja­vík.

Ólöf var deild­ar­stjóri í sam­göngu­ráðu­neyt­inu 1996 til 1999, en átti síðar eftir að verða ráð­herra sam­göngu­mála sem inn­an­rík­is­ráð­herra. Hún var lög­fræð­ingur hjá Verð­bréfa­þingi Íslands 1999 til 2001, stunda­kenn­ari í lög­fræði við Við­skipta­há­skól­ann á Bifröst 2001 til 2002, yfir­maður heild­sölu­við­skipta hjá Lands­virkjun 2002 til 2004, fram­kvæmda­stjóri sölu­sviðs hjá RARIK 2004 til 2005, for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands 2013 til 2014 og svo inn­an­rík­is­ráð­herra frá 2014 fram á þetta ár.

Ólöf bauð sig ekki fram til Alþingis 2013, en var engu að síður skipuð inn­an­rík­is­ráð­herra. Þá var Ólöf kjörin á þing í liðnum alþing­is­kosn­ingum.

„Ein merkasta stjórn­mála­kona Íslend­inga fyrr og síðar farin heim. Blessuð sé hennar minn­ing,“ sagði Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræð­ingur í stöðu­færslu í dag. Stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Eiríkur Bergmann tekur í sama streng: „Ólöf var einn öfl­ug­asti stjórn­mála­maður lands­ins og alltaf svo hlý þegar maður hitti hana, áhuga­söm um aðra og sann­ar­lega ein allra besta fyr­ir­mynd þeirra sem hyggja á þátt­töku í stjórn­málum. Hennar verður sárt saknað,“ skrifar hann.

Hér má lesa um feril Ólafar og þau þing­mál sem hún kom að.

Harmafregn

Á ferli sínum, bæði innan og utan Alþingis, gat Ólöf sér gott orð og naut virð­ingar óháð flokkslínum. 

Álf­heiður Inga­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Vinstri grænna, seg­ist hafa verið sam­ferða Ólöfu á Alþingi árin 2007 til 2013. „Ólöf var björt og glað­vær, fylgin sér og sínum flokki, ekki síst í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þar sem harka­leg deila um stjórn­ar­skrána yfir­skyggði önnur mál 2009-2013. En hún var líka góður ferða­fé­lagi og hrókur alls fagn­aðar, t.d. í heim­sókn nefnd­ar­innar til Noregs 2012 ... Við ræddum sjúk­dóm­inn sem ég sigr­að­ist á um árið en hefur nú lagt hana að velli langt um aldur fram, rétt fimm­tuga. Tómasi og börn­unum fjórum sem hún kynnti fyrir okkur með stolti votta ég inni­lega samúð. Blessuð sé minn­ing Ólafar Nordal.“

Árni Páll Árnason, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir um Ólöfu að hún hafi ávallt verið „heil og ein­læg, ærleg, úrræða­góð og hlý“. Ég votta fjöskyldu Ólafar Nordal, aðstand­endum og sam­starfs­fólki samúð mína vegna frá­falls hennar. 

„Senni­lega einn besti inn­an­rík­is­ráð­herra
sem Ísland hefur átt“

Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­kona Pírata, segir að Ólöf Nordal hafi senni­lega verið „einn besti inn­an­rík­is­ráð­herra sem Ísland hefur átt, en hún naut virð­ingar langt fram­yfir allar flokkslínur - sann­gjörn, skörp og til í að skoða hlut­ina frá öðru sjón­ar­horni. Það var mik­ill heiður að fá að vinna með henni“.

Starfaði af virðingu

Helgi Hrafn Gunn­ars­son lýsir því hvernig var að standa and­spænis Ólöfu á Alþingi:

„Kynni mín af Ólöfu Nordal voru af sam­skiptum okkar á Alþingi kjör­tíma­bilið 2013-2016. Þá var ég þing­maður en hún varð inn­an­rík­is­ráð­herra eftir að sá fyrri sagði sig frá ráð­herra­emb­ætti.

Mig langar að byrja á því að votta öllu því fólki sem fengu þann heiður að kynn­ast henni, jafn­vel lít­il­lega, inni­legar sam­úð­ar­kveðjur.

Ólöf Nordal skap­aði mér ákveð­inn vanda á Alþingi. Dæmigerð sam­skipti stjórn­ar­and­stöðu­þing­manns og ráð­herra eru þannig að það eru tvær umferðir; þing­maður spyr - ráð­herra svarar - þing­maður spyr aftur - ráð­herra svarar aftur. Fleiri form eru til, en þetta er mjög algengt form.

Ólöf Nordal hafði sér­stakt lag að gera mér seinni umferð­ina erf­iða, vegna þess að það gerð­ist yfir­leitt, reyndar langoft­ast, að eitt svar frá henni dugði til að bæði svara því sem spurt var að og lýsa við­horfi sem lítil eða engin þörf var við að bæta. Oft lang­aði mig bara að segja „Flott mál, takk fyrir það!“og stíga niður úr pont­unni. Það kom nokkrum sinnum fyrir að ég þurfti ein­hvern veg­inn klaufa­lega að nýta þessar tvær mín­útur í að tala um að ráð­herr­ann væri ein­fald­lega með á hreinu hvað svosem við vorum að tala um hverju sinni. Það voru auð­vitað ein­staka und­an­tekn­ingar á þessu, en vand­inn sem hún skap­aði manni var eins mál­efna­legur og heið­virður og hægt er að skapa öðrum stjórn­mála­manni: Hún tók ein­læg­lega mark á fólki. Hún hlust­aði, íhug­aði af ein­lægni það sem var sagt og svar­aði af raun­veru­legri virð­ingu; ekki þess­ari virð­ingu sem okkur er öllum skylt að sýna, heldur langt umfram nokkrar kröfur þings eða þjóðar. Þetta var virð­ing fyrir því sem við vorum að gera þarna. Þegar ég hugsa til þing­starf­anna með henni þá finnst mér ekki eins og þetta hafi verið andsvör eða óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir. Mér finnst það næstum því ekki einu sinni hafa verið stjórn­mál. Þetta var sam­tal um hvernig við gætum bætt heim­inn. Verndað rétt­indi borg­ar­anna.

Þótt ég geti ekki sagst hafa þekkt Ólöfu Nordal vel, per­sónu­lega, þá finnst mér á ein­hvern hátt ég hafa misst vin.

Hvíldu í friði, Ólöf. Takk fyrir sam­ver­una.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár