Rúður brotnar Grímu­klæddir hópar nýnas­ista gengu ber­serks­gang í Leipzig á dög­unum, kveiktu í rusla­tunnum, brutu rúður Kebab-staða og rúst­uðu versl­unum inn­flytj­enda. Mynd: AFP

Nýtt ár, nýtt Þýskaland?

Nýja árið hófst með fregnum af for­dæma­lausum árásum og kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart hund­ruð kvenna í mið­borg Kölnar. Flestir árás­armann­anna voru inn­flytj­endur og ein­hverjir þeirra hæl­is­leit­endur. Árás­irnar nærðu hatur og heift gagn­vart útlend­ingum í Þýska­landi. Í kjöl­farið var stefnu stjórn­valda mót­mælt, auk þess sem gengi nýnas­ista og hægri öfga­manna réð­ust á inn­flytj­endur.

Árið 2016 byrj­aði með háværum hvelli og drun­urnar óma enn. And­rúms­loftið í Þýska­landi var eld­fimt fyrir en margir ótt­ast að árás­irnar í Köln hafi verið sem olía á eld hægri öfga­manna sem vex nú ásmegin. Dæmi eru um að inn­flytj­endur verði fyrir árásum á götum úti og versl­anir þeirra lagðar í rúst. Nær þriðj­ungur Þjóð­verja ótt­ast nú að fjöldi flótta­manna í land­inu sé orð­inn of mik­ill.

Nýja árið hófst með fregnum af for­dæma­lausum árásum og kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart hund­ruð kvenna í mið­borg Kölnar. Flestir árás­armann­anna voru inn­flytj­endur, margir frá Norður-Afríku og Mið-Aust­ur­löndum og ein­hverjir þeirra hæl­is­leit­endur. Daglega birt­ast fréttir af fjölda fórn­ar­lamba sem hafa til­kynnt um þjófnað eða ofbeldi í kringum aðal­lest­ar­stöð borg­ar­innar á nýársnótt og er talan komin nærri 700 þegar þetta er skrifað. Þar af eru yfir 300 til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­legt áreiti og/eða ofbeldi.

Við­brögðin hafa ekki látið á sér standa. Dag­blaðið Süddeutsche Zeitung birti teikn­ingu á for­síðu helg­ar­út­gáfu sinnar þar sem sjá mátti svarta hendi teygja sig upp á milli hvítra kven­kyns leggja. Á for­síðu tíma­rits­ins Focus mátti sjá nakta konu úta­taða í svörtum handa­förum. Skila­boðin eru þau að óhreinar krumlur inn­flytj­enda ógni frelsi þýskra kvenna. Áhrifin eru þau að sífellt fleiri ótt­ast um öryggi sitt. Nýjustu fregnir herma að sala á raf­byssum og piparúða hafi aldrei verið meiri. Þessi ótti nærir einnig hatur og heift. Nýnas­istar í Köln fóru nýlega á „manna­veiðar“ í mið­borg­inni og lúskr­uðu á inn­flytj­endum í þeim til­gangi að „hreinsa stað­inn“. 200 grímu­klæddir hægri öfga­menn kveiktu í bílum og brutu rúður veit­inga­staða inn­flytj­enda á mót­mælum Pegida-sam­tak­anna í Leipzig.

Nýleg skoð­ana­könnun sýnir að stuðn­ingur Þjóð­verja við stefnu Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, um að opna dyrnar fyrir flótta­fólki fer dvín­andi. Merkel hefur brugð­ist harka­lega við árás­unum og meðal ann­ars lýst yfir stuðn­ingi við laga­frum­varp sem kveður á um að vísa megi hæl­is­leit­endum sem ger­ast brot­legir við lög þegar í stað úr landi. „Núna allt í einu erum við að horfast í augu við þá þraut að flótta­fólk er að koma til Evrópu og við erum ber­skjölduð, eins og við sjáum, vegna þess að við höfum ekki enn náð regl­unni, stjórn­inni, sem við myndum vilja hafa,“ sagði Merkel nýlega í ljósti nýj­ustu fregna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár