Nichole gagnrýnir RÚV fyrir að gefa Mikael „mikið svigrúm“ og segir að dregin sé upp dökk mynd af sér

Formaður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis heldur áfram að gagn­rýna „ein­hliða umræðu“ um fátækt á Íslandi. „Ég hafði vilja sjá sam­tal um mál­efni,“ skrifar Nichole Leigh Mosty.

Nichole gagnrýnir RÚV fyrir að gefa Mikael „mikið svigrúm“ og segir að dregin sé upp dökk mynd af sér

Nichole Leigh Mosty, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis og þing­kona Bjartrar fram­tíðar, gagn­rýnir að Mikael Torfason rit­höf­undur hafi fengið „mikið svig­rúm“ í Silfrinu til að tala um fátækt á Íslandi án þess að sjón­ar­mið fleiri aðila kæmu fram. Hún seg­ist frekar hefðu viljað sjá „sam­tal um mál­efni“.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Nichole gagn­rýnir fjöl­miðla, en í jan­úar sagði hún í tölvu­pósti til Stund­ar­innar að hún hefði „lesið ótrú­leg­ustu hluti í blöðum og net­miðlum“. Kallaði hún eftir vand­aðri vinnu­brögðum af hálfu fjöl­miðla.

Mál­flutn­ingur Mikaels Torfa­sonar í Silfrinu í gær hefur vakið mikla athygli. „Við búum bara ekki í sann­gjörnu sam­fé­lagi þegar 370 þús­und krónur eru byrj­un­ar­laun hjúkr­un­ar­fræð­ings, þegar fólk á að lifa á örorku, sem er 129 og 180 þús­und á mánuð. Þegar við leggj­umst á kodd­ann í kvöld, þá eigum við að skamm­ast okkar,“ sagði hann meðal ann­ars.

Nichole gerir málið að umtals­efni á Facebook, en eins og Stundin greindi frá fyrr í dag telur hún að umræðan hafi verið ein­hliða. Nichole heldur þessu sjón­ar­miði til streitu og seg­ist hefðu viljað að fleiri tækju þátt í umræð­unni. Þá virð­ist henni ekki hafa þótt umræðan um fátækt mál­efna­leg. „Ég hafði vilja sjá sam­tal um mál­efni,“ skrifar Nichole. Hún seg­ist hafa þurft að kynn­ast fátækt á eigin skinni þegar hún ólst upp í Banda­ríkj­unum. „Punktur er að ég var alls ekki að gera lítið úr umræður um fátæki og mundi aldrei gera það. Eins mikið og fólk vil mála mig svart...“

Hér má sjá færslu hennar í heild:

Uppfært 21. mars:

Nichole fjar­lægði færsl­una í gær­kvöldi og eyddi skömmu síðar Facebook-síðu sinni. Hér má sjá skjá­skot af text­anum sem áður birt­ist þar:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár