Nemendur og kennarar komnir með nóg af því að vera veikir í skólanum

„Þeir sem stjórna hérna vilja bara gleyma okkur,“ segir nem­andi í Lista­há­skóla Íslands, þar sem bæði starfs­fólk og nemar finna fyrir marg­vís­legum ein­kennum veik­inda sem þeir tengja við myglu­svepp. Nemendur lýsa bættri heilsu eftir útskrift.

Nemendur og kennarar komnir með nóg af því að vera veikir í skólanum

Nemendur Lista­há­skóla Íslands hafa fundið fyrir veik­indum í áraraðir  í hús­næði Lista­há­skól­ans á Sölv­hóls­götu 13. Ein­kennin geta lýst sér sem þurkur í hálsi, sviði í augum, mígreni, krónískum höf­uð­verk og svefn­trufl­unum. Nem­end­urnir full­yrða að um myglu­svepp sé að ræða, en rektor hefur ekki stað­fest það. Þeir segja ástandið óvið­un­andi og krefj­ast umbóta strax í her­ferð á sam­fé­lags­miðlum undir myllu­merk­inu #LHÍmygla.

Að sögn nem­enda er myglan hluti af stærri hús­næð­is­vanda Lista­há­skól­ans þar sem hús­næðið henti ekki list­námi og þar sé ekki hjóla­stóla­að­gengi fyrir hreyfi­haml­aða nem­endur. Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir nem­andi á sviðs­höf­unda­braut segir í sam­tali við Stundina, „furðu­legt að árið 2017 við­gengst það að aðeins ófatl­aðir ein­stak­lingar sem eru ónæmir fyrir myglu­svepp geta stundað þetta nám.“

 

„Kennarinn hætti að geta kennt okkur vegna sviða í augum“

„Sjálf finn ég fyrir miklum þurk í hálsi og sviða í augum. Fjöl­margir nem­endur finna fyrir ein­kennum og hafa talað um þau í um tíu ár en aldrei er tekið á mál­inu. Málið er víst núna til rann­sóknar en engin nið­ur­staða er komin svo við vitum. Án þess að vera ein­hver vís­inda­maður finnst mér ólík­legt að 100 nem­endur séu allir með ímynd­un­ar­veiki. Margir kenn­ar­ara vilja ekki stíga inn fyrir húsið því þeir finna fyrir strax fyrir ein­kenn­unum. Við viljum auð­vitað geta lært án þess að finna fyrir slapp­leika og verða sljó. Við viljum að gengið sé í málið í eitt skipti fyrir öll og viljum að nið­ur­stöð­urnar úr þess­ari rann­sókn sem stendur yfir verði birtar sem fyrst,“ segir Salvör.

Í byrjun des­em­ber greindi Frétta­blaðið frá því að Fast­eigna­um­sýsla rík­is­sjóðs kann­aði hvort myglu­svepp væri að finna í hús­næði Lista­há­skóla Íslands. Ólafur Hall­gríms­son, umsjón­ar­maður hús­eigna LHÍ, segir að von sé á nið­ur­stöðum eftir hálfan mánuð. Í sam­tali við Stundina segir Ólafur að ef nið­ur­staðan verði að myglu­svepppur sé í hús­inu þurfi að grípa til aðgerða. Það væri alfarið á ábyrgð Rík­is­eigna sem eiga húsið. Lista­há­skól­inn leigir húsið af Rík­is­eignum og þeir verða að sjá til þess að húsið sé í lagi.

Adolf Smári Unnarsson
Adolf Smári Unn­ars­son Segir nem­endur finna fyrir djöf­ul­legum kvillum

 

Kennarinn hætti að geta kennt vegna sviða í augum 

Snæ­fríður Sól Gunn­ars­dóttir, nem­andi á sviðs­höf­unda­braut, segir mikla reiði hafa vaknað meðal nem­enda í gær. „Við vorum í tíma í inni í rým­inu sem er hvað verst sett og undir lokin var kenn­ar­inn hættur að geta kennt okkur vegna sviða í augum. Það er eng­inn vafi á að það sé myglu­sveppur. Núna finn ég ekki fyrir miklum ein­kennum. Margir bekkj­ar­fé­lagar mínir og starfs­fólk skól­ans finnur fyrir þessu. Ég ætla ekki bara að sitja og bíða á meðan ein­kennin hrann­ast upp,“ segir Snæ­fríður Sól í sam­tali við Stundina.

Adolf Smári Unn­ars­son segir myglu­svepp­inn aðeins vera hluti af stærra vanda­máli. „Nemendur finna fyrir djöf­ul­legum kvillum sem eiga rætur sínar að rekja til myglu­svepps­ins. Okkur grunar að það sé bara litið fram­hjá þessu, það er tendens í sam­fé­lag­inu að líta fram hjá list­námi. Ég held að okkur verði bara úthýst hérna því þeir sem stjórna hérna vilja bara gleyma okkur,“ segir Adolf Smári

„Okkur grunar að það sé bara litið fram­hjá þessu, það er tendens í sam­fé­lag­inu að líta fram­hjá list­námi.“

„Fyrir ein­hverjum árum var sett upp bráða­byrgð­hús­næði fyrir list­dans­braut­ina sem átti að vera hérna til tveggja eða þriggja ára. Þeir sem voru þá nem­endur eru byrj­aðir að kenna okkur og nú 12 árum síðar er þetta hús­næði enn hérna,“ segir Adolf Smári. Hann segir að fyrrum nem­endur hafi varað þau við þegar þau hófu nám í Lista­há­skól­anum og jafn­framt að þau lýsi undra­verðum bata þegar þau útskrif­ast.

Skólpleki fór í sófa

Hallveg Kristin Eiríks­dóttir er í starfs­námi í Stokk­hólmi og seg­ist hafa fundið gríð­ar­legan mun á heilsu­fari sínu eftir að hún fór út fyrir rúmum mán­uði síðan. „Hérna er ég að vinna nákvæm­lega sömu vinnu og á Íslandi undir nákvæm­lega sama álagi en hef ekki fundið fyrir neinum af þessum ein­kennum. Þetta er mikið lík­am­leg vinna og stundum erum við að setja upp sýn­ingar í marga daga, þetta hús­næði er við­bjóður. Það er ekki bara myglan, í fyrra sprakk eitt­hvað rör og mynd­aði skólp­leka. Það lak niður í eina sófann sem sviðs­höf­und­ar­braut hefur. Við stóðum bara yfir sóf­anum sem var renn­andi blautur með ein­hverju svörtu vatni í,“ segir Hallveig Kristín í sam­tali við Stundina.

Erfitt er fyrir nem­endur að bregð­ast við vanda­mál­inu.

„Það er alltaf ein­hver að mót­mæla og vekja athygli á þessu og ein­hver plön sett í gang. Svo ger­ist aldrei neitt, nem­end­urnir útskrif­ast og nýjir nem­endur koma og ferlið fer aftur á byrj­un­ar­reit. Við erum að borga hálfa milljón á ári fyrir myglað hús­næði með engu hjóla­stóla­að­gengi þar sem stundum kemur skólp­leki,“ segir Hallveig Kristín.

Hallveig Kristín Eiríksdóttir
Hallveig Kristín Eiríks­dóttir Andar að sér fersku lofti í starfs­námi í Svíþjóð

„Við erum að borga hálfa milljón á ári fyrir myglað hús­næði með engu hjóla­stóla­að­gengi þar sem stundum kemur skólp­leki.“ 

Í sam­tali við Stundina segir Fríða Björk Ingv­ars­dóttir, rektor Lista­há­skóla Íslands, að litið sé mjög alvar­legum augum á vanda­málið. „Við höfum grun um að það sé húsa­sótt. Lista­há­skól­inn fór fram á rann­sókn en nið­ur­staðan liggur ekki fyrir. Rann­sóknin snýst um að fá það stað­fest hvort um myglu­svepp sé að ræða eða ekki. Fyrir utan grun um myglu­svepp vitum við að hús­næðið er algjör­lega óvið­un­andi of hefur verið það í 20 ár. Við höfum lagt hart að rík­inu að eiga við okkur sam­tal um fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu en það hefur verið árang­urs­laust. Lista­há­skól­inn er núna á fjórum stöðum í borg­inni og í tveim þeirra er ekki hjóla­stóla­að­gengi. Við beittum öllum ráðum sem við kunnum til að eiga sam­tal við sein­ustu rík­is­stjórn en án árang­urs. Við bindum vonir um að ná áheyrn núver­andi mennta- og mennign­ar­mála­ráð­herra. Hvort sem það er húsa­sótt eða ekki hæfir þetta hús­næði ekki til list­náms,“ segir Fríða Björk. 

Snæfríður Björnsdóttir
Snæ­fríður Björns­dóttir Hefur haft háls­bólgu og höf­uð­verk nán­ast frá því skóla­árið hófst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár