Mikael Torfason ósáttur við að fá ekki listamannalaun

Rit­höf­undur segir að úthlutund­ar­nefnd hafa mis­stigið sig þegar hún ákvað að veita honum ekki rit­höf­unda­laun.

Mikael Torfason ósáttur við að fá ekki listamannalaun

Mikael Torfason rit­höf­undur telur að úthlut­un­ar­nefnd launa­sjóðs rit­höf­unda hljóti að hafa mis­stigið sig þegar hún ákvað að veita honum ekki rit­höf­unda­laun á síð­asta ári. Þetta skrifar hann í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. Hann segir að óljósar skil­grein­ingar liggi fyrir um hver skuli fá lista­manna­laun en að sér sýn­ist þetta snú­ast um að gera þeim kleift að halda sér við efnið sem hafa sýnt vilja og getu til þess. Með styrkj­unum liggi þannig fyrir afurðir á menn­ing­ar­svið­inu. „Og fyrir árið 2015 skil­aði ég til úthlut­un­ar­nefnd­ar­innar drögum að nýrri bók, minni sjöttu, og leik­riti. Bókin heitir Týnd í para­dís og fékk ljóm­andi við­tökur. Mín besta bók, er mér sagt. Leik­rita­gerðin sneri að Síðustu dögum Kjarvals sem Útvarps­leik­húsið flutti og svo Njálu í Borg­ar­leik­hús­inu. Ég er ekki að telja þetta upp til að monta mig heldur til að sýna fram á að úthlut­un­ar­nefndin hlýtur, í þessu ljósi, að hafa mis­stigið sig,“ skrifar Mikael. „Nú liggur úthlutun fyrir sem tekur til árs­ins 2016 og aftur: Núll fyrir mig,“ bætir hann við.

„Úthlut­un­ar­nefndin hlýtur, í þessu ljósi, að hafa mis­stigið sig.“

Mikael setur þetta í sam­hengi við fréttir þess efnis að stjórn Rit­höf­unda­sam­bands­ins velji sjálf nefnd­ina sem úthlutar þeim og öðrum rit­höf­undum starfs­laun, en öll aðal­stjórn félags­ins fékk úthlutuð tólf mán­aða rit­höf­unda­laun á dög­unum. „Af nefnd sem þau sjálf völdu,“ eins og Mikael orðar þar. Hann segir lista­manna­laun eiga fullan rétt á sér. En, þeim verði að úthluta þannig að eng­inn vafi leiki á um að þar ráði ekki ann­ar­leg sjón­ar­mið för. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár