Lögreglulið sent að Hvaleyrarvatni vegna sögusagna

Lög­reglan var send að Hval­eyr­ar­vatni við Hafn­ar­fjörð. Stór hópur fólks hefur safn­ast þar saman vegna óstað­festra full­yrð­inga á sam­fé­lags­miðlum.

Lögreglulið sent að Hvaleyrarvatni vegna sögusagna

Lög­reglu­lið var sent að Hval­eyr­ar­vatni við Hafn­ar­fjörð fyrir skemmstu eftir þrá­látar yfir­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðlum um lík­fund. 

Grímur Grímsson, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá lög­regl­unni í Reykja­vík, stað­festi þetta í sam­tali við Stundina um mið­nætti. Hann gat þá ekki stað­fest að aðgerðin tengd­ist leit­inni að Birnu Brjáns­dóttur. Hann sagði þó að eng­inn skipu­leg leit, hvorki hjá lög­reglu né hjá björg­un­ar­sveit­unum, hefði átt sér stað á svæð­inu. 

Margar óljósar sögu­sagnir og óstað­festar full­yrð­ingar hafa gengið milli fólks um mál Birnu Brjáns­dóttur í dag. 

Fjöl­mennur hópur fólks hefur safn­ast saman á svæð­inu. Hópurinn er hvorki á vegum lög­reglu né björg­un­ar­sveita. Upp­lýs­ingar af lög­reglu­út­kall­inu voru að öðru leyti óljósar.

Blaða­maður Stund­ar­innar kann­aði málið á vett­vangi. Þar er enn mik­ill fjöldi fólks en engar lög­reglu­að­gerðir. 

Uppfært klukkan 01.15: Lögregla hefur nú kannað málið á vett­vangi á grund­velli þess orðróms sem gekk á sam­fé­lags­miðlum um að lík Birnu hefði fund­ist í Hval­eyr­ar­vatni. Til­kynn­ingin barst ekki í gegnum hefð­bundnar leiðir, með sím­hring­ingu í gegnum neyð­ar­línu. Lög­reglan hvetur fólk að til­kynna ábend­ingar um neyð­ar­línu en láta vera að dreifa sögu­sögnum á sam­fé­lags­miðlum.

Stundin ræddi við lög­reglu fyrir birt­ingu frétt­ar­innar og mun halda áfram að birta fréttir af mál­inu byggðar á stað­fest­ingum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár