Lögreglan óskar eftir því að ná tali af þessum ökumanni

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu óskar eftir að ná tali af öku­manni hvíta bíls­ins, sem var ekið vestur Óseyr­ar­braut í Hafn­ar­firði laug­ar­dag­inn 14. jan­úar kl. 12.24.

Lögreglan óskar eftir því að ná tali af þessum ökumanni
Veist þú hver situr undir stýri á þessum bíl? Hafðu sam­band við lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Lögreglan

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu óskar eftir að ná tali af öku­manni hvíta bíls­ins, sem var ekið vestur Óseyr­ar­braut í Hafn­ar­firði laug­ar­dag­inn 14. jan­úar kl. 12.24. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá lög­reglu sem send var fjöl­miðlum nú rétt í þessu. Tengist þetta rann­sókn lög­reglu á hvarfi Birnu Brjáns­dóttir en hún hvarf spor­laust aðfara­nótt laug­ar­dags­ins 14. jan­úar.

Lög­reglan tekur skýrt fram í frétta­til­kynn­ing­unni að öku­mað­ur­inn er ekki grun­aður um neitt mis­jafnt, en hann gæti hugs­an­lega búið yfir upp­lýs­ingum sem kunna að nýt­ast lög­reglu við rann­sókn máls Birnu Brjáns­dóttur.

Viti aðrir deili á bif­reið­inni og öku­manni hennar eru hinir sömu beðnir um að koma þeim upp­lýs­ingum til lög­reglu í síma 444 1000, í einka­skila­boðum á fés­bók­ar­síðu Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða í tölvu­pósti á net­fangið abending@lrh.is

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar gæti öku­mað­ur­inn búið yfir mik­il­vægri vit­neskju sem gæti hjápað til við að púsla saman ferðum rauða Kia Rio-bíla­leigu­bíls­ins sem var leigður af áhafn­ar­með­limi Polar Nanoq, þeim sama og nú situr í gæslu­varð­haldi ásamt öðrum skip­verja. Þeir voru úrskurð­aðir í tveggja vikna gæslu­varð­hald en þeirri nið­ur­stöðu hefur lög­reglan áfrýjað til Hæsta­réttar Íslands. Krafa lög­reglu var gæslu­varð­hald í fjórar vikur.

Sá þriðji situr einnig í gæslu­varð­haldi en hann er grun­aður um stór­fellt eit­ur­lyfja­smygl en um 20 kíló af hassi fund­ust um borð við leit lög­reglu- og toll­gæslu. Hann var dæmdur í gæslu­varð­hald fram á mánu­dag.

ENGLISH

The dri­ver of the white car, dri­ven west on Óseyr­ar­braut in Hafn­ar­fjordur last Saturday at 12.24, is asked to come forward and contact the police as he might have information reg­ar­ding a miss­ing per­son case, in which 20 y.o. Birna Brj­ans­dottir went miss­ing.

The num­ber for police is 444 1000, messa­ges through abending@lrh.is and pri­vate messa­ges on the Reykja­vik Metropolitan Police Facebook site.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár