Líkir múslímum á Íslandi við ofbeldismann á heimili

Gústaf Níelsson, mætti sem álits­gjafi á Bylgj­unni og sagði íslenska stjórn­mála­menn ,,tipla á tánum".

Gústaf Níelsson, sem gerður var aft­ur­reka sem vara­maður í mann­réttinda­ráði Reykja­vík­ur­borgar, dró upp þá sam­lík­ingu í þætt­inum Bítinu á Bylgj­unni í morgun, að múslímar á Íslandi væru í svip­aðri stöðu og ofbeld­is­menn á heim­ilum. Íslenskir stjórn­mála­menn væru í hlut­verki hins kúg­aða og tipluðu á tánum í kringum ofbeld­is­fólkið.

„Það sem mér finnst sér­kenni­leg­ast er að stjórn­mála­menn allra flokka tipla á tánum í kringum þetta fólk, svona af ótta við við­brögðin. Stjórn­mála­menn­irnir eru í reynd­inni eins og kona í ofbeld­is­sam­bandi sem tiplar á tánum í kringum ofbeld­is­mann­inn af ótta við hin óvæntu við­brögð hans. Við þetta er ekk­ert búandi,“ sagði Gústaf í útvarps­þætt­inum Bítinu á Bylgj­unni í morgun þar sem hann sat einn fyrir svörum hlust­enda.

Um tíma hitn­aði í kol­unum þegar einn hlust­enda sagði vera sam­svörun milli skoðan Gústafs og norska fjöldamorð­ingj­ans Anders Behring Breivik. Gústaf varð­ist og sagð­ist ekki deila sjón­ar­miðum með „þessum ógæfu­manni“.

Gústaf var einnig í umræðu­þætti á Stöð 2 í gær­kvöld þar sem hann reif­aði skoð­anir sínar á múslímum sem hann segir að streymi til Vestur-Evrópu vegna þess að þeirra eigin lönd séu í upp­lausn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Moskumálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár