Lífið átti bara að vera partí

Blaða­mað­ur­inn Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé gerir upp líf sitt eftir þrot­lausa leit að gleð­inni sem end­aði undir stjórn áfengis. Hann stendur uppi gjald­þrota en frjáls til að móta sína eigin fram­tíð.

Lífið átti bara að vera partí
Að loknu upp­gjöri Kolbeinn fékk ráð­legg­ingar um að lýsa sig per­sónu­lega gjald­þrota. Mynd: Kristinn Magnússon

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé steig fram á Facebook fyrir skömmu og lýsti því yfir að hann væri gjald­þrota. Hann segir það vera erf­ið­ustu spor sem hann hefur stigið í líf­inu en hann sé hættur að vera í afneitun, búinn að vera edrú í rúm tvö ár og loks­ins til­bú­inn að horfast í augu við lífið eins og það er, með hæðum og lægðum. Langvar­andi alkó­hól­ismi hafi sett sitt mark á líf hans en nú sé komið að því að gefa líf­inu til baka.

Til að skilja hvernig alkó­hól­ismi þró­ast og veldur því að fólk missir tök á lífi sínu er oft væn­leg­ast að byrja á byrj­un­inni, fara alla leið aftur í æsk­una. Kolbeinn seg­ist hafa alist upp „úti um allt“, í Reykja­vík, á Dalvík, í Hafn­ar­firði, á Siglu­firði og í Kópavogi. Grunn­skól­arnir voru fimm og hann var ári á undan jafn­öldrum sínum í skóla. „Maður vand­ist því fljótt að vera nýi gaur­inn í skól­anum og það kannski mót­aði mann að ein­hverju leyti en ég held þetta sé samt aðal­lega bara mitt eðli; ég á mjög erfitt með að vera lengi á sama stað og þarf alltaf að vera að prófa eitt­hvað nýtt. Grasið er alltaf aðeins grænna hinu megin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár