Eldar mat sem minnir á mömmu

Í eldhúsinu er Pattra Sriyanonge bæði undir áhrifum af taílenskum uppruna sínum og dönskum lífsstíl. Hún býr í Árósum ásamt eigin­manni sínum, Theódór Elmari Bjarna­syni, og nýfæddum syni þeirra. Hún deilir meðal annars með lesendum minningum af taílensku nauta­salati og súrdeigs­brauði að hætti Dana. 

Pattra Sriyanonge
Pattra Sri­ya­nonge Hún er taí­lensk að upp­runa og eldar oft mat sem minnir hana á æsku­slóðir og mömmu sína. Mynd: Úr einkasafni

1 Taílenskt nautasalat 

 

 

Þessi réttur er í miklu uppáhaldi á mínu heimili og er þar að auki afar vinsæll í matar­boðum. Hann er líka býsna auðveldur og fljót­legur. Salatið minnir mig á mömmu en hún var dugleg að elda bragð­sterkan taílenskan mat ofan í mig í æsku, eftir að við fluttum frá Taílandi og settumst að á Íslandi. Ég geri þetta aldrei nákvæmlega eins, því ég nota ekki uppskriftir, en í salatinu er tilbúið salatmix með gulrótum í, mynta, kóríander, vorlaukur, rauð­laukur, gúrka, jarð­hnetur og bauna­spírur. Allt grænmetið er skorið niður og því komið fyrir í skál. Síðan strái ég jarð­hnetunum yfir. Þá er komið að því að útbúa dressinguna. Ég blanda saman í skál um það bil 3 matskeiðum af hoisin-sósu, tveimur matskeiðum af sojasósu, fiskisósu og hvítvínsediki. Svo bæti ég við safa úr heilu lime-i og chili eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár