Glaumgosi verður konungur Taílands í skugga hneykslismála

Þaulsetnasti þjóðar­leiðtogi samtímans, Bhumibol Adulyadej, konungur Taílands, er látinn. Sonur hans og arftaki, Maha Vajira­long­korn, á að baki þrjú misheppnuð hjónabönd, að minnsta kosti sjö börn og gerði hundinn sinn að yfirmanni flug­hersins. Löggjöf sem bannar gagnrýni á konungs­fjöl­skylduna gerir það af verkum að Taílendingar vita lítið sem ekkert um þennan væntanlega konung sinn.

Bhumibol konungur
Bhumibol kon­ungur til vinstri, ásamt Sirikit drottn­ingu og syni þeirra, Maha Vajira­long­korn, til­von­andi kon­ungi lands­ins.

Síðastliðinn fimmtudag lést sá þjóðar­leiðtogi sem lengst hafði setið á valda­stóli, Bhumibol Adulyadej, konungur Taílands. Hinn 88 ára gamli konungur hafði verið við völd í 70 ár þegar hann lést og var dáður af þegnum sínum, en heilsu hans hafði farið hrakandi undan­farin ár. Konugurinn var talinn stjórnsýsluleg festa í landi sem hafði gengið í gegnum fjölmörg valdarán og annan pólitískan ólgusjó. Við andlátið tilkynnti forsætis­ráðherra landsins að prinsinn Maha Vajiralongkorn yrði hinn nýi konungur. Maha hefur verið mjög umdeildur, þó að gagnrýni á hann og konungs­fjöl­skylduna alla sé þeim vandkvæðum bundin í Taílandi að hún er alfarið ólögleg. 

Taílendingar
Taílendingar trylltust margir úr sorg þegar fréttir bárust af andláti Bhumibol konungs.

Áhugamaður um ljósmyndun og jazz

Bhumibol heitinn fæddist í bænum Cambridge í Massachusetts í Banda­ríkjunum árið 1927, á þeim tíma sem faðir hans var í námi í Harvard. Árið 1929 var fjöl­skyldan komin aftur til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár