Konan sem stal hænunni

Í næstu 13 tölu­blöðum mun Vigdís Gríms­dóttirspyrja gesti og gang­andi 13 spurn­inga. Hall­gerður Pét­urs­dóttir ríður á vaðið og segir frá því þegar hún stal hænu og gekk fylktu liði um bæinn.

Konan sem stal hænunni

Nafn: Hall­gerður Pét­urs­dóttir.

Fæð­ing­ar­dagur og ár: 13.1. 1948.

Starf: Elli- og líf­eyr­is­laun­þegi.

 

Spurningar:

1. Hvað er það skemmti­leg­asta sem þú gerir?

Að upp­lifa það að verða enn þá stein­hissa, orðin 69 ára gömul, rifja oft upp orð Sigurðar Páls­sonar skálds: Ef engin væri hug­ljóm­unin væri ekk­ert líf.

2. Líf eftir þetta líf?

Já, í þeirri merk­ingu að minn­ast lát­inna, langa svo inni­lega að hringja eða spjalla við þann sem er geng­inn, það er minn­ingin sem lifir.

3.  Hvað er það neyð­ar­leg­asta sem þú hefur lent í?

Það var þegar ég stal hænu frá pabba og setti hana í tré­dúkku­vagn systur minnar og keyrði með hæn­una rúnt um bæinn. Systir mín fékk vagn en ekki ég, ein­hver karl úti í bæ hafði sagt að ég væri óþæg! Strollan af krökkum var á eftir mér og augna­blikið var mitt. Það þurfti að lóga hæn­unni eftir að hafa farið þessa salí­bunu.

Það alversta var að ég var ekki skömmuð.

4. Ertu póli­tísk?

Já, ég er hápóli­tísk, lífið er póli­tík.

5. Trúirðu á til­vilj­anir?

Nei.

6. Ef þú ættir eina ósk sem myndi örugg­lega ræt­ast, hver væri hún?

Þessi spurn­ing er flókin og svo­lítið mót­sagna­kennd. Hefur maður nokkurn tím­ann það öryggi að vita að ósk ræt­ist? Ósk mín, sem ég veit að ræt­ist þrátt fyrir allt, er sú að Trump geti stöðvað vit­leys­ing­inn í Norður-Kóreu og jafn­vel verið elsk­aður eftir, svona þegar upp er staðið. Lífið getur verið svo ótrú­lega ófyr­ir­séð.

7. Ef þú gætir breytt ein­hverju sem þú hefur gert, hverju mynd­irðu breyta?

Að hafa haft það vit sem ég hef í dag þegar ég ól börnin okkar upp.

8. Hverju mynd­irðu breyta á Íslandi ætt­irðu þess kost?

Ég mundi gjör­breyta póli­tískum áherslum og fók­usa númer eitt á vel­ferð barna.

9. En í heim­inum?

Sama svar og í spurn­ing­unni á undan.

10. Ef þú skrif­aðir ljóða­bók, hvaða nafn gæf­irðu henni?

Ljóða­bókin mín mundi heita: Ó-sjálf­stætt fólk.

11. Hver er afstaða þín til flótta­manna?

Afstaða mín til flótta­manna er skýr, rétta þeim skil­yrð­is­lausa hjálp­ar­hönd.

12. Hvaða dýr mynd­irðu vilja vera fen­g­irðu tæki­færi til þess?

Köttur á góðu heim­ili.

13. Segðu okkur eitt­hvað um ást­ina og byrj­aðu á Ástin er ...:

Ástin er eins og Kiljan sagði aðspurður: Hvað er ást? Ég veit það ekki, sagði skáldið svo ef þú ert spurður, þá ljúgðu maður, ljúgðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár