Eina stjórnmálakonan fékk aðeins hrós fyrir að líta vel út

Af sjö full­trúum stjórn­mála­flokka á þingi voru sex karl­menn í Krydd­síld Stöðvar 2. Þegar stjórn­mála­leið­tog­arnir voru beðnir að gefa hver öðrum hrós var körlunum hrósað fyrir and­legt atgervi en kon­unnni einni hrósað fyrir útlitið.

Eina stjórnmálakonan fékk aðeins hrós fyrir að líta vel út
Katrín og Benedikt Katrín Jak­obs­dóttir var eini stjórn­mála­leið­tog­inn sem fékk aðeins hrós fyrir útlit sitt. Mynd: Stöð 2

Sjö full­trúar stjórn­mála­flokk­anna á Alþingi ræddu saman í Krydd­síld­inni á Stöð 2 á gaml­árs­dag. Ein kona var full­trúi stjórn­mála­flokks. Þátt­ar­stjórn­and­inn, Logi Bergmann Eiðsson, bað flokks­for­menn­ina að hrósa hver öðrum fyrir eitt­hvað í fari þeirra. 

Karl­menn­irnir sex gáfu hver öðrum lynd­is­ein­kunn á grund­velli mann­kosta eins og gáfna­fars, yfir­veg­unar, sam­skipta­hæfni og fleira sem við­kemur per­sónu­leika þeirra. Konan, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, fékk hins vegar ein hrós fyrir það eitt að líta vel út þann dag­inn.

„Mig langar svo­lítið að gerta til­raun sem er stundum gerð í fyr­ir­tækjum til að efla lið­sanda, sem er að segja eit­hvað fal­legt um sessu­naut­inn, segja eitt­hvað jákvætt,“ sagði Logi Bergmann.

„Mér kemur honum fyrir sjónir sem jákvæður og lífs­glaður maður,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, um Loga Ein­ars­son, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar.

„Bráð­greindur maður sem er gaman að hafa kynnst,“ sagði Logi Ein­ars­son um Smára McCarthy, umboðs­mann Pírata.

„Rosalega hug­ul­samur, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár