Komu að einu ólöglegu einkavæðingunni og hafa aldrei skilað ársreikningum

Einka­væð­ing Íslenskra aðal­verk­taka var dæmd ólög­leg í Hæsta­rétti Íslands árið 2008. Kaup­verðið á 40 pró­sentum í fyr­ir­tæk­inu var tveir millj­arðar en á næstu tveimur árum þar á eftir voru 4,3 millj­arðar teknir í arð úr fyr­ir­tæk­inu og ein af eign­unum var seld á tæpa 12 millj­arða. Starfs­maður Rík­is­skatt­stjóra segir að unnið sé að því að setja ný lög með strang­ari við­ur­lögum gegn því að skila ekki árs­reikn­ingum.

Komu að einu ólöglegu einkavæðingunni og hafa aldrei skilað ársreikningum
Eina ólög­lega einka­væð­ingin Eina ólög­lega einka­væð­ingin For­stjóri Íslenskra aðal­verk­taka keypti 40 pró­senta hlut íslenska rík­is­ins í verk­taka­fyr­ir­tæk­inu í einu ólög­legu einka­væð­ingu Íslands­sög­unnar árið 2003, sam­kvæmt Hæsta­rétti. Fyr­ir­tækin sem keyptu ÍAV hafa aldrei skilað árs­reikn­ingi. Stefán Frið­finn­son, Halldór Ásgríms­son, Geir H. Haarde og Ólafur Dav­íðs­son sjást hér við und­ir­ritun samn­ings­ins um kaupin árið 2003.

Fyr­ir­tækin tvö sem sem keyptu rík­is­fyr­ir­tækið Íslenska aðal­verk­taka (ÍAV) árið 2003, í umdeildri einka­væð­ingu sem Hæsti­réttur Íslands telur gall­aða, hafa aldrei skilað árs­reikn­ingi og getur emb­ætti Rík­is­skatt­stjóra ekk­ert gert til að knýja þau til þess. Eina úrræði Rík­is­skatt­stjóra er að sekta fyr­ir­tæki sem skila ekki árs­reikn­ingnum en sektin nemur 250 þús­und krónum á ári. Þetta kemur fram í svari frá emb­ætti Rík­is­skatt­stjóra við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um árs­reikn­inga­skil fyr­ir­tækj­anna tveggja, Eign­ar­halds­félags­ins AV ehf. og Eign­ar­halds­fé­lags­ins Gás ehf. Rík­is­skatt­stjóri getur hins vegar ekki gefið upp hversu háar sektir ein­staka fyr­ir­tæki hafa greitt vegna van­skila á árs­reikn­ingnum: „Rík­is­skatt­stjóri gefur ekki upp sektir á ein­stök félög.“

Miðað við svör Skúla Jóns­sonar hjá emb­ætti Rík­is­skatt­stjóra gætu sekt­ar­greiðsl­urnar hins vegar numið nokkrum millj­ónum króna.  „Heimild til beit­ingu sektar vegna van­skila árs­reikn­inga var lög­fest 2006 og reglu­gerð sett 2008. Fyrstu sektir voru lagðar á félög, þó aðeins lít­inn hluta þeirra, á árinu 2009 vegna reikn­ings­árs­ins 2007. Í maí  2011 voru öll félög í van­skilum sektuð og hefur svo verið á hverju ári síðan. Sekt­ar­fjár­hæð hefur verið kr. 250.000 öll árin. Þó er ekki heim­ilt að sekta stærstu félögin heldur er þeim málum vísað til skatt­rann­sókn­ar­stjóra.“

Forstjórinn einn þeirra sem keypti

Fyr­ir­tækið sem keypti 40 pró­senta hlut rík­is­ins í Íslenskum aðal­verk­tökum var Eign­ar­halds­fé­lagið AV ehf. og var það í eigu Gás ehf. Kaup­verðið var um tveir millj­arðar króna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár