Kínverjar opna íslenska vefsíðu með falsaðar landsliðstreyjur

Vefsíðan Fot­bolta­treyjur.com aug­lýsir nú grimmt á Facebook en þar er á ferð­inni kín­verskt fyr­ir­tæki sem nýtir sér þýð­ingar frá Google. „Deila þess­ari færslu og eins fan­page okkar, munt þú hafa tæki­færi til að fá ókeypis gjöf.“ Fram­kvæmda­stjóri Errea á Íslandi segir engan alvöru stuðn­ings­mann mæta í kín­verskri eft­ir­lík­ingu á EM2016.

Kínverjar opna íslenska vefsíðu með falsaðar landsliðstreyjur
Viðar Valsson Starfs­maður Jóa Útherja er ánægður með söl­una á íslenska lands­liðs­bún­ing­inum hér á landi og segir fals­aðar treyjur ekki hafa haft mæl­an­leg áhrif á söl­una. Mynd: Úr einkasafni

Kín­verskir aðilar hafa opnað vef­síðu sem er dul­búin stuðn­ings­manna­síða fyrir íslenska lands­liðið. Þeir aug­lýsa sér­stak­lega fyrir Íslend­inga á Facebook.

„Nei, þessi síða er ekki á okkar vegum. Þetta er bara kín­versk síða sem notar ljós­myndir frá okkur til þess að aug­lýsa treyj­urnar,“ segir Þor­valdur Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri Errea á Íslandi sem hann­aði og fram­leiðir íslensku lands­liðs­bún­ing­ana fyrir knatt­spyrnu­liðið sem tekur þátt á Evr­ópu­mót­inu.

29 dagar eru í stór­mótið og búast má við því að öll þjóðin fylgist með þegar Íslend­ingar mæta Portú­gölum í St. Etienne þann 14. júní næst­kom­andi.

Töluvert hefur verið fjallað um íslensku lands­liðs­bún­ing­ana í fjöl­miðlum að und­an­förnu og þá sér­stak­lega þær treyjur sem fást á hinni alræmdu Ali­Ex­press-vef­síðu sem er þekkt fyrir að selja fals­aðar vörur. Stór­fyr­ir­tæki á borð við Nike hafa háð mikla bar­áttu gegn vef­síð­unni og hefur það skilað sér í því að færri og færri vörur frá fyr­ir­tæk­inu eru nú í boði á kín­versku síð­unni.

Eigandi hennar, Jack Ma, er sá rík­asti í Kína og var núna síð­ast met­inn af Forbes sem 18. rík­asti maður í heimi. Auðæfi hans eru sögð í kring um 23 billjónir banda­ríkja­doll­ara eða því sem sam­svarar 2.832.910.000.000 íslenskra króna.

Kínverjar nota Google Translate og auglýsa grimmt

Nú hefur salan á fölsuðu treyj­unum náð út fyrir Ali­Ex­press og eru nú boðnar til sölu á þýddum vef sem hýstur er á lén­inu fot­bolta­treyjur.com. Vefsíðan hefur verið að aug­lýsa grimmt á Facebook og beint aug­lýs­ingum sínum sér­stak­lega að Íslend­ingum og þeir hvattir til að taka þátt í Facebook-leik til þess að eiga mögu­leika á frírri fals­aðri treyju.

Samkvæmt vef­síð­unni eru treyj­urnar til sölu á 4.928 krónur en þær sem Errea fram­leiðir í Evrópu og selur hér á landi kosta 11.990 krónur. Treyj­urnar sem fást á vef­síðu Ali­Ex­press kosta allt frá 1.900 krón­um og upp í 3.000 krón­ur en þetta lága vöru­verð þýðir þó ekki endi­lega að þú sért að fá vöru sem lítur út eins og alvöru treyj­urnar, líkt og fram­kvæmda­stjóri Errea hefur kom­ist að.

Ein var fjólublá og hin ekki í almennri sölu

Þor­valdur segir í sam­tali við Stundina að þeir hafi séð að minnsta kosti tvær útgáfur af fölsuðum treyjum sem hafa komið hingað til lands og eru þær langt frá því að vera líkar þeim alvöru sem fram­leiddar eru í Evrópu af Errea.

„Enginn alvöru stuðn­ings­maður íslenska lands­liðs­ins mætir í Kína­treyju á leik“

„Það er greini­legur lita­munur. Ein sem við sáum var miklu frekar fjólu­blá en blá og hin var með UEFA-merk­inu á öxl­unum en slíkar treyjur eru ekki seldar á almennum mark­aði og eru aðeins ætl­aðar knatt­spyrnu­mönn­unum sjálfum inni á vell­inum,“ segir Þor­valdur sem hefur þó engar áhyggjur af því að fölsuðu treyj­urnar hafi mikil áhrif á sölu þeirra sem fram­leiddar eru í Evrópu og eru „alvöru“.

Mikil eft­ir­spurn sé eftir alvöru treyjum og til marks um það þá hefur salan á þeim náð víðar en bara til Íslands. Treyj­urnar séu seldar í versl­unum í Frakk­landi, Svíþjóð, Danmörku, Aust­ur­ríki og Sviss svo ein­hver lönd séu nefnd.

Stolnar myndir
Stolnar myndir Kín­versku fals­ar­arnir stálu myndum af Errea á Íslandi og aug­lýsa nú lands­liðs­bún­ing­ana grimmt á Facebook.

„Íslend­ingar og aðdá­endur lands­liðs­ins sem búa í Færeyjum geta meira að segja tryggt sér alvöru treyju í íþrótta­versl­unum þar í landi. Þá hefur evr­ópska knatt­spyrnu­sam­bandið einnig keypt af okkur treyjur og eru þær til sölu í vef­versl­unum UEFA.“ 

Salan gengið framar vonum

Þá segir Þor­valdur að eng­inn alvöru stuðn­ings­maður íslenska lands­liðs­ins mæti í kína­treyju á leik. Þessu er Viðar Valsson, starfs­maður Jóa Útherja, sam­mála en hann segir söl­una hafa gengið framar vonum og að sala á fölsuðum treyjum hafi haft svo lítil áhrif að þau séu varla mæl­an­leg.

„Þessu fólki virð­ist bara slétt sama hvort þetta sé falsað eða ekki“

„Við höfum fengið að sjá fjórar eða fimm mis­mun­andi fals­aðar treyjur en það eru þá ein­stak­lingar sem hafa komið með þær til okkar í merk­ingu. Þessu fólki virð­ist bara slétt sama hvort þetta sé falsað eða ekki en við að sjálf­sögðu nefnum þetta við fólk og að þetta sé ekki rétt, sé bannað og ólög­legt en eins og ég segi þá virð­ist fólki bara vera slétt sama. Við grátum það þó ekki því þetta er ekki okkar kúnna­hópur. Þetta eru í öllum til­vikum ein­stak­lingar sem hafa aldrei verslað við okkur eða aðra aðila sem selja alvöru treyjur á fullu verði þannig að við lítum svo á að við séum ekki að missa kúnna­hóp,“ segir Viðar og bætir við að það verði allir í bláu í júní mán­uði: „Ég held að það sé alveg pott­þétt.“

Viðskiptavinir sáttir við hönnunina

Þegar lands­lið­s­treyjan var kynnt fyrr á þessu ári voru fjöl­margir tísku­spek­úlantar vonsviknir með hönn­un­ina og sögðu hana bein­línis ljóta. Viðar segir þetta illa umtal sem hún fékk ekki hafa haft nein áhrif, þvert á móti hafi við­skipta­vinir Jóa Útherja talað fal­lega um hana.

 „Þeir sem hafa komið til okkar hafa ekki haft neitt út á hana að setja og finnst hún bara flott.“

Frjálst flæði til Íslands af fölsuðum varning

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur tolla­yf­ir­völdum ekki tek­ist að koma böndum á inn­flutn­ing á fölsuðum íþrótta­treyjum hingað til lands en þeir lög­fræð­ingar sem Stundin ræddi við og sér­hæfa sig í höf­und­ar­rétt­ar­málum segja Ísland standa aft­ar­lega á mer­inni þegar það kemur að fölsuðum vörum. Þá virð­ist engu skipta hvort um er að ræða íþrótta­treyjur eða hús­gögn sem hönnuð eru af heims­frægum lista­mönnum.

„Svo virð­ist sem að tolla­yf­ir­völd hér á landi hafi lít­inn sem engan áhuga á því að stöðva þennan inn­flutn­ing og því er frjálst flæði af fölsuðum sölu­varn­ingi hingað til lands. Það er bara sorg­leg stað­reynd,“ sagði lög­fræð­ingur sem ekki vildi láta nafns síns getið.

Eftir því sem Stundin kemst næst hefur að minnsta kosti ein lög­fræði­stofa hér á landi sent fyr­ir­spurnir til tolla­yf­ir­valda vegna inn­flutn­ings á fölsuðum vörum hingað til lands og virð­ist það vera að fær­ast í auk­ana að sölu­að­ilar hér á landi leiti réttar síns vegna fals­aðra vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár