Ekki búið að selja ljósvakahluta 365 til Símans

Eiríkur Jónsson blaða­maður full­yrðir á vef sínum að Síminn hafi keypt ljós­vaka­hluta fjöl­miðl­aris­ans 365. Síminn hafnar þessu og aðal­rit­stjóri 365 verst allra fregna.

Ekki búið að selja ljósvakahluta 365 til Símans

Eiríkur Jónsson blaða­maður full­yrðir á vef sínum að Síminn hafi keypt ljós­vaka­hluta fjöl­miðl­aris­ans 365; þ.e. Stöð 2, Bylgjuna og aðrar útvarps­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins. 

Stundin hafði sam­band við Kristínu Þor­steins­dóttur, aðal­rit­stjóra 365 miðla, sem ját­aði því hvorki né neit­aði að fréttin ætti sér stoð í raun­veru­leik­anum. Vildi hún ekki veita blaða­manni neinar upp­lýs­ingar um málið.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er rangt að Síminn sé búinn að kaupa ljós­vaka­hluta 365. Slík kaup eru ekki í form­legu ferli en hafa komið til álita hjá fyr­ir­tækj­unum.

„Gengið verður form­lega frá þessu innan skamms en Frétta­blaðið og visir.is fylgja ekki með í kaup­unum. Þó herma aðrar heim­ildir að eig­endur 365, Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Ingi­björg Pálma­dóttir, séu búin að finna kaup­endur að þeim hluta líka – en það er ekki Síminn,“ segir á vef Eiríks. 

Uppfært kl. 19:35:

Síminn hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu um að fyr­ir­tækið hafi ekki keypt ljós­vaka­miðla 365 og við­ræður standi ekki yfir. „Fyr­ir­tækið tjáir sig því ekki um get­gátur og orðróm. Vegna full­yrð­inga á opin­berum vett­vangi í dag viljum við hins vegar taka fram að Sím­inn hefur ekki keypt ljós­vaka­miðla 365. Við­ræður standa ekki yfir­,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár