Katrín ætlar ekki að bjóða sig fram

Katrín Jak­obs­dóttir mun ekki bjóða sig fram sem for­seta Íslands.

Katrín ætlar ekki að bjóða sig fram

Katrín Jak­obs­dóttir hyggst ekki bjóða sig fram til for­seta Íslands. Þetta til­kynnti hún á Facebook síðu sinni fyrir skemmstu. Hún segir að þrátt fyrir jákvæð við­brögð ætli hún ekki að skipta um skoðun. „ Ég vona að kosn­inga­bar­átta þeirra ein­stak­linga sem gefa kost á sér í þetta emb­ætti verði mál­efna­leg og inni­halds­rík og í þetta emb­ætti velj­ist góður þjónn þjóð­ar­innar sem beiti sér fyrir mann­rétt­indum og lýð­ræð­isum­bótum, vernd nátt­úru og umhverfis og stöðu íslenskrar tungu,“ segir hún jafn­framt.

Samkvæmt könnun Stund­ar­innar og MMR er Katrín með lang­mestan stuðn­ing sem for­seti, en 23 pró­sent svar­enda sögð­ust lík­legir til að kjósa hana. Í við­tali við Stundina fyrir skemmstu sagði Katrín að auki að for­seti eigi að berj­ast fyrir umhverfi, lýð­ræði og mann­rétt­indum.

Hér er tilkynning Katrínar í heild:

„Fjöl­margir hafa haft sam­band að und­an­förnu og hvatt mig til að bjóða mig fram sem for­seta Íslands. Fólk sem ég þekki vel og fólk sem ég þekki ekk­ert, fólk hvaðanæva af land­inu, fólk af öllum stéttum, konur og karlar, fólk á öllum aldri. Að sama skapi hafa birst kann­anir þar sem ein­hverjir virt­ust telja mig heppi­lega í þetta emb­ætti.

Af þessum sökum fannst mér ekki geta annað en hug­leitt málið alvar­lega í nokkra daga. Ég hef líka tekið eftir gagn­rýni frá ein­staka mönnum sem eru dug­legir að tjá sig, virð­ast ótt­ast fram­boð mitt meira en góðu hófi gegnir og ráða ekki almenni­lega við þá hug­mynd að konur taki eigin ákvarð­anir.

Það sem stendur hins vegar upp úr eru mörg góð orð frá stórum og fjöl­breyttum hópi fólks sem ég ber virð­ingu fyrir og vil þakka hvatn­ing­una.

Óháð þessum jákvæðu við­brögðum en einnig algjör­lega burt­séð frá þeim nei­kvæðu hef ég hins vegar tekið þá ákvörðun að skipta ekki um skoðun. Ég mun ekki bjóða mig fram til emb­ættis for­seta Íslands að þessu sinni. Ég vona að kosn­inga­bar­átta þeirra ein­stak­linga sem gefa kost á sér í þetta emb­ætti verði mál­efna­leg og inni­halds­rík og í þetta emb­ætti velj­ist góður þjónn þjóð­ar­innar sem beiti sér fyrir mann­rétt­indum og lýð­ræð­isum­bótum, vernd nátt­úru og umhverfis og stöðu íslenskrar tungu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár