Kallar eftir aukinni virðingu fyrir ungu fólki í þjóðmálaumræðunni

Ráð­herra­son­ur­inn Róbert Smári Gunn­ars­son hefur brenn­andi áhuga á stjórn­málum og hvetur ungt fólk til að vera óhrætt við að koma sínu á fram­færi og láta gott af sér leiða. „Getum við ekki breytt þessu þannig að ungt fólk verði tekið sem sjálf­sögðum hlut í umræð­unni líkt og þeir sem eldri eru?“ spyr hann.

Kallar eftir aukinni virðingu fyrir ungu fólki í þjóðmálaumræðunni

Róbert Smári Gunn­ars­son, 16 ára nemi og sonur Gunnars Braga Sveins­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, kallar eftir því að ungu fólki sem lætur að sér kveða í þjóð­mála­um­ræð­unni á Íslandi sé sýnd meiri virð­ing. Þetta kemur fram í ein­lægum pistli eftir Róbert sem birt­ist á vef Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag.

„Mér líður stundum sem 16 ára ungum manni einsog litið sé niður til mín þegar ég tjái skoð­anir mínar opin­ber­lega. Eitt sinn var sagt við mig að ég ætti ekk­ert að vera tjá mig um hluti sem ég hefði ekk­ert vit á, sem dæmi,“ skrifar Róbert sem seg­ist hafa gíf­ur­legan áhuga á þjóð­fé­lags­málum og gjarnan vilja taka þátt í stjórn­málum af ein­hverju tagi í fram­tíð­inni.

„„En hvenær ætti ég að þora því?“ er spurn­ing sem veltur án efa á mörgu ungu fólki, og ég velti fyrir mér áður en ég sendi þessa grein. Hvað þarf maður að hafa til að geta farið út í póli­tík, eða bara til að vera tekin sjálf­sagður í umræðu um póli­tík? Þarf ég að vera háskóla­geng­inn, búinn að vera á vinnu­mark­aði í ára­tugi, kom­inn með maka og börn?“ spyr Róbert.

Þá rifjar hann upp að þegar Gauti Geirsson, 22 ára háskóla­nemi, var ráð­inn sem aðstoð­ar­maður Gunnars Braga, föður Róberts, hafi ráðn­ingin verið gagn­rýnd harð­lega á Facebook. Hið sama hafi verið uppi á ten­ingnum þegar hin unga Jóhanna María Sig­munds­dóttir sett­ist á þing. „Þau voru tætt í sig meðal eldra fólks og sögð vera börn. Ég lít á þetta unga fólk sem ákveðna hvatn­ingu, hvatn­ingu til ungs fólks að láta í sér heyra, koma sínu á fram­færi og láta gott af sér leiða,“ skrifar Róbert.

„Þegar ein­hver nær svona langt og fær gott tæki­færi hjá stjórn­völdum er það virð­inga­vert og mikið fagn­að­ar­efni, og sýnir traust stjórn­valda til ungs fólks-, og vilja til að gefa ungu fólki tæki­færi, en samt ná nei­kvæðu radd­irnar of oft að verða háværastar. Getum við ekki breytt þessu þannig að ungt fólk verði tekið sem sjálf­sögðum hlut í umræð­unni líkt og þeir sem eldri eru? Það eiga allir sama rétt til að tjá sig, óháð aldri, búsetu, upp­runa, efna­hag og öðru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár