Snjallmiðlakynslóðin nötrar: Kaldhæðni er ekki vandamálið, heldur þöggun

Margrét Erla Maack baðst afsök­unar á kald­hæðn­is­legum ummælum sem hún lét falla á Rás 2.

Snjallmiðlakynslóðin nötrar: Kaldhæðni er ekki vandamálið, heldur þöggun

Margrét Erla Maack, dag­skrár­gerð­ar­kona á Rás 2, hefur beðist afsök­unar á ummælum sem hún lét falla í morg­un­þætti Rásar 2 í morgun. 

„Við minnum bara fólk á að nauðga bara heima hjá sér í Vest­manna­eyjum“ sagði hún í lok þátt­ar­ins og vís­aði þar til umræðu um kyn­ferð­is­brot á Þjóð­há­tíð og þagn­ar­kröfu Páleyjar Borg­þórs­dóttur, lög­reglu­stjóra í Vest­manna­eyjum.

Sjá einnig:

Umdeildur lög­reglu­stjóri skorar á bæj­ar­stjór­ann að bjóða sig fram til Alþingis

Elliði kemur Páleyju til varnar en rík­is­lög­reglu­stjóri segir
þagn­ar­kröfu hennar „stíl­brot“

 

 

Margrét segir nú að hún hafi farið yfir strikið í beinni útsend­ingu og að ummælin hafi ekki verið boð­leg á vett­vangi Rík­is­út­varps­ins.

 

Haft er eftir Frank Hall, dag­skrár­stjóra Rásar 2, á vef RÚV að þau Margrét hafi rætt málin, hún sjái eftir ummæl­unum og sé búin að biðj­ast afsök­unar á þeim. 

Skiptar skoð­anir eru um málið á sam­fé­lags­miðlum. Skemmti­kraft­ur­inn Þor­steinn Guð­munds­son og fleiri benda á að kald­hæðni sé mik­il­vægt tæki sem megi ekki úthýsa:
 

 

 

Þá furðar Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir, einn nafn­tog­að­asti femínisti lands­ins til margra ára, sig á því að fólki finn­ist eitt­hvað athuga­vert við kald­hæðni Mar­grétar Erlu: 


Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, hefur verið gagn­rýnd harð­lega eftir að hún lét eft­ir­far­andi orð falla í við­tali við Vísi:

„Flest þess­ara brota eiga sér stað á milli tveggja ein­stak­linga í lok­uðum rýmum þangað sem fólk fer yfir­leitt sjálf­vilj­ugt. Það er bara stað­reyndin. Við erum ekki að sjá þessi brot, sem betur fer og von­andi munum við ekki sjá það og reynum að fyr­ir­byggja með öfl­ugri gæslu og svona, þessi almanna­fær­is­brot. Og það er nátt­úr­lega það sem sífellt er verk­efni lög­reglu. Að reyna að tryggja lög­gæslu á almanna­færi og all­staðar svo fólk sé óhult þar sem það er á gangi á ýmsum vett­vangi. En það er erf­ið­ara við að eiga, og þess vegna eru þetta svona við­kvæm brot, þau ger­ast mjög oft á milli tengdra og nátengdra aðila inni í lok­uðu rými.“

Þá hefur verið haft eftir Páleyju að lög­reglu­emb­ættið í Vest­manna­eyjum muni til­kynna um fjölda fíkni­efna­mála og lík­ams­árása á almanna­færi á Þjóð­há­tíð, enda sé þar um almanna­hættu að ræða. Þetta eigi yfir­leitt ekki við um kyn­ferð­is­af­brot.

Snjall­miðla­kyn­slóðin hefur brugð­ist harka­lega við fram­göngu og mál­flutn­ingi lög­reglu­stjór­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár