Kærði vin sinn fyrir nauðgun en málið var fellt niður: Þetta er ekki kynlíf

Hólm­fríður Anna þurfti að leita sér aðstoðar vegna áfallastreiturösk­unar eftir atvikið, en hún vill koma þeim skila­boðum á fram­færi að ef þú þarft að suða um kyn­líf, draga við­kom­andi oftar en einu sinni úr bux­unum og hugga hann á meðan athæf­inu stendur, séu allar líkur á að hann vilji ekki stunda kyn­líf með þér. Þá sé það nauðgun.

Kærði vin sinn fyrir nauðgun en málið var fellt niður: Þetta er ekki kynlíf

Síð­ast­lið­inn föstu­dag fékk Hólm­fríður Anna Alex­and­ers­dóttir bréf þar sem henni var til­kynnt um að mál, þar sem hún kærði vin sinn fyrir nauðgun, hefði verið látið niður falla af þeim sökum að orð standi á móti orði. Allar atvika­lýs­ingar voru þær sömu, nema hvað hann kvað hana hafa viljað þetta. Hólm­fríður Anna deildi sögu sinni á Facebook, en þar seg­ist hún vona að hún muni ekki þurfa að standa í sömu sporum og móðir sín, og þurfa að segja við dóttur sína: „Svona er kerfið.“

„Slakaðu á“

Umrætt atvik átti sér stað í apríl 2016 og strák­ur­inn sem hún kærði fyrir nauðgun var vinur hennar, eða svo hélt hún fram að þessu. Hún segir að hann hafi suðað í henni um kyn­líf en hún neitað í sífellu, útskýrt af hverju og beðist afsök­unar á því. Hún furðar sig reyndar á því í dag að hafa beðist afsök­unar.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár