Jólin erfiður tími fyrir Sveindísi sem upplifir sig foreldralausa: „Ég er reið, ég er pirruð og ég er sár“

Sveindís Guð­munds­dóttir fór að heiman sextán ára gömul og leit aldrei um öxl. Fyrir jólin hellist skamm­degið yfir og hún fyllist öfund gagn­vart fólki sem á eðli­legt sam­band við fjöl­skyld­una sína. Sjálf er hún hvorki í sam­bandi við föður sinn né móður, en seg­ist hafa lært af árunum sem hún var ein með móður sinni hvernig hún mun aldrei koma fram við börnin sín.

Jólin erfiður tími fyrir Sveindísi sem upplifir sig foreldralausa: „Ég er reið, ég er pirruð og ég er sár“

„Stundum langar mig bara að eiga mömmu til að tala við og pabba til að hugga mig,“ segir í pistli frá Svein­dísi Guð­munds­dóttur, um það hvað jólin eru erf­iður árs­tími fyrir fólk sem er ekki í tengslum við fjöl­skyld­una. „Ég er reið, ég er pirruð og ég er sár. Ég er að ganga í gegnum tíma núna sem ég þyrfti virki­lega á for­eldri að halda, ég er orðin svo lang­þreytt á að treysta bara á sjálfa mig og standa alein á mínum fótum, ég hef verið að svo lengi og núna er ég þreytt.“

Sveindís fór að heiman sextán ára gömul og hefur ekki verið í neinu sam­bandi við móður sína síðan. Hún og systir hennar, Linda María Guð­munds­dóttir, sögðu sögu sína í sam­tali við Stundina í jan­úar og lýstu þar ofbeldi af hálfu móður sinnar. Þar lýsti Sveindís því meðal ann­ars þegar hún fór að heiman:  „Ég var komin út á götu þegar mamma upp­götv­aði að ég væri farin. Hún kall­aði á eftir mér en ég hélt áfram án þess að líta við. Ég gekk göt­una á enda og burt, eins langt og ég komst. Ég kom aldrei heim aftur.“

Linda María sótti systur sína og bauð henni að búa hjá sér. Sjálf var hún aðeins barn að aldri þegar hún var farin að reyna að vernda yngri systk­ini sín. „Ég var ekki orðin tíu ára þegar ég var farin að fara út með systur mína á sleða seinni part­inn og segja henni að horfa til stjarn­anna, því við gætum alltaf óskað okkur betri tíðar.“

Móðir þeirra hafn­aði ásök­unum systr­anna og sagði þær ljúga. Hún sagð­ist ekki vita af hverju en sagði um Svein­dísi: „Mér þótti virki­lega vænt um hana. Þetta er sama mann­eskjan að sjá en inn­rætið er farið.“ Faðir þeirra vildi ekki tjá sig, en í pistl­inum sem Sveindís skrif­aði seg­ist hún ekki heldur vera í neinu sam­bandi við hann lengur. Pistil­inn má lesa í heild sinni hér að neðan.

Þið sem eigið foreldra, verið þakklát

„Það er eitt sem hefur legið á mínu hjarta síð­ustu daga og gerir það alltaf þegar jólin nálg­ast. Ég öfunda svo mikið fólk sem eðli­lega fjöl­skyldu, sem á eðli­legt fjöl­skyldu­mynstur og eðli­lega for­eldra. Það er eitt­hvað við skamm­degið sem fær mig til að hugsa meira um þetta núna en rest­ina af árinu.

Ég lít á sjálfa mig sem for­eldra­lausa, þó að for­eldrar mínir séu báðir á lífi. Þetta sam­band á milli okkar er svo langt frá því að vera eðli­legt að það er bara fárán­legt. Ég hef þurft að standa á eigin fótum í langan tíma, þurfti að þroskast langt fyrir aldur fram því ég var á for­ræði for­eldris sem gat engan vegin hugsað um mig. Eini lær­dóm­ur­inn sem ég get tekið með mér inni í fram­tíð­ina frá þeim sex árum sem ég var ein með þess­ari konu er hvernig ég mun ALDREI koma fram við börnin mín. Ég mun alltaf koma fram við þau af kær­leika og aldrei gera lítið úr þeim eða leggja mínar hendur á þau.

„Ég mun alltaf koma fram við þau af kær­leika og aldrei gera lítið úr þeim eða leggja mínar hendur á þau“

Nú hef ég ekki heldur verið í sam­bandi við föður minn í rúmt eitt og hálft ár. Sumir kunna bara ekki að vera for­eldrar. Það er enn lengra síðan systur mínar hafa talað við hann og hann þekkir ekki barna­börnin sín, hversu frá­bær þau eru og hversu ótrú­lega skemmti­legir og flottir ein­stak­lingar þeir eru. Þetta er allt sem telst „eðli­legt“ í minni fjöl­skyldu. Að tala ekki saman svo árum skiptir.

Ég er reið, ég er pirruð og ég er sár. Ég er að ganga í gegnum tíma núna þar sem ég þyrfti virki­lega á for­eldri að halda. Ég er orðin lang­þreytt á að treysta bara á sjálfa mig og standa alein á mínum fótum. Ég hef verið að svo lengi og núna er ég þreytt. Þetta hefur legið lengi djúpt á hjarta mínu og ég varð að koma þessu frá mér.

Ég er samt sem áður stolt af mér. Allt sem ég hef afrekað ein síð­ustu ár. Ég hef verið ótrú­lega dug­leg suma daga en aðra daga hef ég gefið skít í allt og vor­kennt sjálfri mér og grátið í hljóði. En núna vil ég ekki eiga þessa slæmu daga lengur. Ég ætla að harka af mér og halda ótrauð áfram þó að ég hafi ekki bak­land í for­eldrum mínum. Þið sem eigið for­eldra sem eru allt í lagi, verið þakk­lát því það eru ekki allir svo heppnir. Á svona tímum er ég þakk­lát fyrir systur mínar og ég er þakk­lát fyrir vini mína. Það sem er svo mikil synd varð­andi þetta allt sam­ana er að ég á for­eldra sem eru á lífi, en samt líður mér eins og ég eigi enga for­eldra. Stundum langar mig bara að eiga mömmu til að tala við og pabba til að hugga mig.

Ég hef oft sagt þetta í gegnum árin, maður fær ekki að velja fjöl­skyld­una sína en maður fær að velja vini sína og því er eins gott að vanda valið.“

Sjá einnig: Systur lýsa ofbeldi móður sinnar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár