Ingibjörg Haraldsdóttir látin eftir ævintýralegt lífshlaup

Í dag lést Ingi­björg Har­alds­dóttir, ljóð­skáld, þýð­andi, leik­stjóri blaða­maður og gagn­rýn­andi. Ingi­björg hlaut Íslensku bók­mennta­verð­launin árið 2002 fyrir ljóða­bók­ina Hvar sem ég verð en bókin var einnig til­nefnd til Bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs. Hún var einnig einn afkasta­mesti þýð­andi lands­ins, aðal­lega úr spænsku og rúss­nesku.

Ingibjörg Haraldsdóttir látin eftir ævintýralegt lífshlaup
Ingi­björg Har­alds­dóttir 1942-2016 Mynd: Forlagið

Ingi­björg Har­alds­dóttir fædd­ist í Reykja­vík 21. októ­ber 1942 og ólst þar upp. Eftir stúd­ents­próf stund­aði hún nám við Kvik­mynda­skóla rík­is­ins í Moskvu og lauk Mag. art prófi í kvik­mynda­stjórn þaðan 1969. Hún starf­aði sem aðstoð­ar­leik­stjóri við leik­húsið Teatro Estudio í Havana á Kúbu frá 1970 – 1975. Hún skrif­aði og þýddi blaða­greinar, aðal­lega fyrir Þjóð­vilj­ann, meðan hún dvaldi í Sov­ét­ríkj­unum og á Kúbu. Eftir heim­kom­una til Íslands í árs­lok 1975 vann hún sem blaða­maður og kvik­mynda­gagn­rýn­andi á Þjóð­vilj­anum um ára­bil.

Frá 1981 var Ingi­björg ljóð­skáld og þýð­andi að aðal­starfi, en fyrsta ljóða­bók hennar, Þangað vil ég fljúga, kom út árið 1974. Ingi­björg gaf út sjö ljóða­bækur, þar af tvær safn­bækur, og hafa ljóð hennar verið þýdd á ung­versku, þýsku, lett­nesku, lit­háísku, búl­gör­sku, rúss­nesku, slóvakísku, ensku og Norð­ur­landa­mál.

Hún hlaut ýmsar við­ur­kenn­ingar fyrir rit­störf sín, meðal ann­ars Ljóða­verð­laun Guð­mundar Böðv­ars­sonar, Íslensku bók­mennta­verð­launin, Menn­ing­ar­verð­laun DV fyrir þýð­ingu sína á Fávit­anum eftir Dostojev­skí og Íslensku þýð­ing­ar­verð­launin 2004 fyrir Fjár­hættu­spil­ar­ann eftir sama höf­und. Þá var hún tvisvar til­nefnd til Bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs, 1993 og 2004.

Ingi­björg var afkasta­mik­ill þýð­andi, aðal­lega úr spænsku og rúss­nesku. Hún þýddi meðal ann­ars skáld­sögur eftir Dostojev­skí og Búlgakov, fjölda leik­rita eftir ýmsa höf­unda og þýð­ingar hennar á ljóðum og smá­sögum spænsku- og rúss­nesku­mæl­andi höf­unda birt­ust í tíma­ritum og voru fluttar í útvarpi.

Ingi­björg sat í stjórn Rit­höf­unda­sam­bands Íslands frá 1992 – 1998 og var for­maður sam­bands­ins frá 1994 – 1998. Hún var í rit­nefnd Tímarits Máls og menn­ingar frá 1977 og var aðstoð­ar­rit­stjóri tíma­rits­ins frá 1993 - 2000. Hún átti sæti í rit­nefnd tíma­rits þýð­enda, Jón á Bægisá.

Ljóðin bjarga mannslífum

Í áhuga­verðum fyr­ir­lestr­inum Ingi­bjargar, Ljóð gripin sem hálm­strá, sem hún flutti í Norræna hús­inu árið 2005 sagði hún: „Ljóðin bjarga manns­lífum – þau eru gripin sem hálm­strá – þau eru nauð­syn­leg, þau hefja mann upp úr gráma hvunn­dags­ins, leiða hug­ann að því óáþreif­an­lega og sál­ræna, þau lýsa upp myrkrið og gefa fyr­ir­heit um lit­ríka fram­tíð. Þau segja: láttu ekki hug­fall­ast þótt myrkrið sé dimmt, ein­hvern­tíma birtir á ný.“

Hug­sjónir Ingi­bjargar leit­uðu alla tíð til vinstri og fór hún meðal ann­ars til Sov­ét­ríkj­anna og svo Kúbu til þess að skerpa á þeim skoð­unum. Um tíma sinn í Sov­ét­ríkj­unum hafði Ingi­björg þetta að segja: 

„Í Moskvu var jafn­vel erf­ið­ara að vera bóhem en í Reykja­vík svo að ég varð að gefa þann draum end­an­lega upp á bát­inn. Það var fussað og sveiað ef kven­fólk sást reykja, ég tala nú ekki um ef það sýndi sig í síð­buxum á almanna­færi eða varð upp­víst að ein­hverjum enn svaka­legri dóna­skap. Allt þetta fuss, svo ekki sé minnst á ógn­vekj­andi mann­mergð­ina á gang­stéttum þess­arar miklu borgar eða fram­andi tungu­málið sem eftir á að hyggja kann að hafa verið það sem gerði end­an­lega úts­lagið, - allt þetta hafði lam­andi áhrif á skræf­una mig svo ég stein­hætti að yrkja. Ég var komin í ókunnan heim og móð­ur­málið dugði mér ekki lengur til að lýsa því sem bærð­ist innra með mér, hvað þá umhverf­inu sem ég hrærð­ist í. Skáld­gáfan lá í dvala árum saman.“

Um heimsenda og skáldskap

Ingi­björg kveður þessa jarð­vist sama dag og Banda­ríkja­menn kjósa sér nýjan for­seta. Ýmsir hafa lýst því yfir að fari þær kosn­ingar á hinn eða þennan veg­inn sé voð­inn vís fyrir heims­byggð­ina alla. Um þá þörf manns­ins að finna sér stöðugt nýjar dóms­dags­spár til þess að fár­ast yfir sagði Ingi­björg:

„Síðan ég man eftir mér hefur heim­ur­inn verið að far­ast. Ef það var ekki atóm­bomban var það heims­valda­stefnan, komm­ún­ism­inn, alnæmið, ofbeldið, kap­ít­al­ism­inn, klámið, mansalið, eit­ur­lyfin, gróð­ur­húsa­á­hrifin, trú­ar­bragða­of­stækið, hern­að­ar­hyggjan, nátt­úru­ham­far­irnar, hryðju­verka-ógnin, offitan, hungrið, vatns­leysið, fuglaflensan, enda­lok tung­unnar, dauði ljóðs­ins - svo ekki sé minnst á þá fram­tíð­ar­sýn sem við blasir ef hvert kín­verskt heim­ili eign­ast ein­hvern­tíma bíl, ísskáp og þvotta­vél.... alltaf vofði eitt­hvað yfir okkur, og vofir enn. Samt erum við hér ennþá og ver­öldin er ennþá fögur, far­fugl­arnir enn á sínu und­ar­lega flugi og enn eru skáldin að yrkja og finna fyrir þeim „djúpa fögn­uði“ sem sköp­un­ar­til­finn­ingin vekur. Þrátt fyrir hat­rið og stríðin, þrátt fyrir allt.

Eflaust ger­ast menn skáld af marg­vís­legum ástæðum, áreið­an­lega eru þar fleiri kall­aðir en útvaldir, og víst er til fólk sem aldrei ljær neinum skáld­skap eyra, hnussar bara ef það heyrir minnst á svo­leiðis þvælu. Samt sem áður getum við full­yrt að skáld­skapur hefur lifað með mann­kyni frá ómuna­tíð, lifir enn og mun lifa svo lengi sem litlar stelpur og litlir strákar eru eitt­hvað að gaufa alein, tala við sjálf sig og finna upp á að bulla og raða saman orðum svo úr verða sögur og ljóð.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár