„Í stað þess að horfast í augu við vandann var tilvalið að kenna öðrum um hann“

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir Árna Pál Árnason og telur ómak­legt að rekja vanda Sam­fylk­ing­ar­innar til for­manns­fram­boðs síns á lands­fundi 2015.

„Í stað þess að horfast í augu við vandann var tilvalið að kenna öðrum um hann“

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að „dig­ur­mæli og sam­sær­is­kenn­ingar“ helstu stuðn­ings­manna Árna Páls Árna­sonar, frá­far­andi for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, í kjöl­far óvænts for­manns­fram­boðs hennar á lands­fundi flokks­ins í fyrra verði lengi í minnum höfð.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í yfir­lýs­ingu sem hún hefur sent frá sér vegna ummæla sem Árni Páll lét falla í við­tali við DV í vik­unni. Sagði Árni Páll að engin umræða hefði farið fram innan þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar um óánægju með hann og hans for­mennsku fyrir lands­fund­inn 2015. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefði auk­ist á fyrri hluta yfir­stand­andi kjör­tíma­bils en eftir lands­fund­inn 2015 hafi fylg­iðið súnkað og flokknum allar götur síðan reynst erfitt að „finna takt­inn á nýjan leik“. Sigríður gagn­rýnir þessa sögu­skýr­ingu.

„Í DV við­tali nú í vik­unni fer frá­far­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar yfir far­inn veg. Þar heldur hann því fram enn eina ferð­ina að fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hafi verið í góðu lagi við upp­haf lands­fundar 20. mars 2015 og að engin óánægja með hans störf hafi komið fram. Ég neyð­ist til að leið­rétta þetta,“ skrifar hún og bætir við: „Sam­fylk­ingin hafði vissu­lega náð að rétta sig aðeins við eftir ósig­ur­inn 2013 þegar við fengum 12,9% atkvæða. Í des­em­ber 2014 vorum við komin í 20,3% fylgi sam­kvæmt Gallup en svo fór að síga á ógæfu­hlið­ina. Í jan­ú­ar­lok 2015 fórum við niður í 18,5% og 17,1% í febr­úar. Mikill órói var í flokknum og óánægja með frammi­stöðu okkar, ekki síst for­manns­ins. Þegar MMR könnun þann 18. mars sýndi 15,5% fylgi tók stein­inn úr. Nokkrum vikum fyrir lands­fund­inn sagði fyrr­ver­andi for­ystu­maður jafn­að­ar­manna ljóst að flokk­ur­inn hefði týnt erind­is­bréf­inu. Þessi ummæli lýsa vel til­finn­ingu margra í flokknum í aðdrag­anda lands­fund­ar­ins 2015.“

Segir Ingi­björg að Árna Páli hljóti að hafa verið óánægjan ljós þó hann tali nú eins og óánægjan á lands­fund­inum hafi komið eins og þruma úr heið­skíru lofti.

Þá lýsir hún því hvernig það atvik­að­ist að hún bauð sig fram til for­manns: „Vikurnar fyrir lands­fund hafði fjöldi fólks haft sam­band við mig og lýst yfir áhyggjum sínum af stöðu flokks­ins og margir hvöttu mig til að fara fram. Ég taldi það ekki ráð­legt. Eftir því sem nær dró lands­fundi varð ljóst að þátt­taka yrði í algjöru lág­marki og vitað að margir myndu lýsa óánægju sinni með for­mann­inn með því að skila auðu í for­manns­kjöri á fund­inum. Óánægjan og doð­inn í flokknum var skelfi­legur. Ég tók því þá ákvörðun síð­degis á fimmtu­degi fyrir lands­fund, þann 19. mars, að gefa kost á mér til for­mennsku.“ 

„Óánægjan og doð­inn í
flokknum var skelfi­legur“

Hún segir við­brögðin hafa verið miklu sterk­ari og jákvæð­ari en hún hafði búist við, ekki bara frá Sam­fylk­ing­ar­fólki heldur ýmsu fólki á vinstri vængnum. „Á lands­fundi kom í ljós hversu djúp­stæð óánægjan var, enda sigr­aði sitj­andi for­maður kjörið með aðeins einu atkvæði. Dig­ur­mæli og sam­sær­is­kenn­ingar helstu stuðn­ings­manna for­manns­ins eftir kjörið verða lengi í minnum höfð. Í stað þess að horfast í augu við vand­ann, var til­valið að kenna öðrum um hann,“ skrifar Sigríður Ingi­björg. Þar vísar hún vænt­an­lega til ummæla á borð við þau sem Kristrún Heim­is­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­kona Ingi­bjargar Sólrúnar Gísla­dóttur og stuðn­ings­kona Árna Páls, við­hafði með því að kalla fram­boð Sigríðar „bana­til­ræði úr laun­sátri“ og „fyr­ir­lit­legan ódreng­skap“. 

Sigríður bendir á að á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sum­arið 2010 bauð Pétur Blöndal þáver­andi þing­maður sig fram á móti sitj­andi for­manni, Bjarna Bene­dikts­syni, á lands­fund­inum sjálfum. „Pétur fékk tæpan þriðj­ung atkvæða og leiddi þannig í ljós óánægju flokks­manna með for­yst­una. Framboð eins og okkar Péturs Blöndal eru við­vör­un­ar­skot til sitj­andi for­manna og til þess fallin að neyða þá til að horfast í augu við vand­ann en gefur þeim líka tæki­færi til að takast á við hann í kjöl­farið. Veldur hver á heldur,“ skrifar Sigríður. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár