Hvort fara sjómenn eða Þorgerður Katrín með rangt mál?

Jónas Garð­ars­son, for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, stað­festir frá­sögn Vil­hjálms Birg­is­sonar um að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, hafi hótað sjó­mönnum laga­setn­ingu. Þor­gerður Katrín segir það ein­fald­lega ekki rétt.

Hvort fara sjómenn eða Þorgerður Katrín með rangt mál?
Þor­gerður Katrín Sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Í gær­kvöldi var samn­ingur Sjó­manna­sam­bands Íslands sam­þykktur með naumum meiri­hluta. Niðu­staðar atkvæða­greiðsl­unnar var til­kynnt hjá rík­is­sátta­semj­ara klukkan 20:45. Fór kosn­ingin um samn­ingin þannig að 52,3 pró­sent sam­þykktu hann en 46,9 pró­sent greiddu atkvæði gegn honum. Auðir og ógildir seðlar voru átta. Alls kusu 1189 sjó­menn um samn­ingin, og voru 623 atkvæði greidd með honum en 558 greidd gegn.

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, sagði Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráð­herra, hafa hótað sjó­mönnum laga­setn­ingu, og þannig stillt þeim upp við vegg að semja við útgerð­ar­menn. 

Þor­gerður Katrín neit­aði því í við­tali við Morg­un­út­varp Rásar 2 að hafa hótað laga­setn­ingu. (Samtalið hefst eftir rúmar 34 mín­útur af þætt­inum.) „Nei það er ein­fald­lega ekki rétt,“ sagði Þor­gerður í sam­tali við Sigmar Guð­munds­son. Sigmar gekk á Þorgerði og spurði hana aftur: „Sagðir þú þeim um helg­ina að það væru lög til­búin og þau yrðu sett ef menn myndu ekki semja stuttu síðar? Voru þau orð hang­andi yfir samn­inga­nefnd­unum þarna um helg­ina?“

„Loðnan er komin hérna, hún setti auð­vitað þrýst­ing á alla.“

Þor­gerður svar­aði spurn­ing­unni: „Ja, það er alveg ljóst að við ræddum þetta, við sögðum, það eru komnar tíu vikur í verk­falli. Menn átt­uðu sig á að það var komið að þessum skurð­punkti. Loðnan er komin hérna, hún setti auð­vitað þrýst­ing á alla. Loðnan er komin, og það eru nátt­úr­lega ekki margir kostir eftir þegar menn eru búnir að vera tíu vikur í verk­falli. En það er af og frá að þeim hafi verið hótað.“

Vil­hjálmur tjáði sig fyrst um málið opin­ber­lega í Facebook-færslu í gær­kvöldi. Þar sagði hann að hluta sjó­manna­for­yst­unnar hefði verið til­kynnt að búið væri að gera klár lög á deil­una. „En ráð­herr­ann sagði „þetta er ekki hótun“! Jafn­framt sagði hún að sjó­manna­for­ystan hefði til mið­nættis að svara þessu sátta­til­boði, því ef til­boð­inu yrði ekki tekið og deilan myndi ekki leys­ast þá þyrfti hún að hringja í for­seta Alþings til að kalla Alþingi saman og setja lög á sjó­menn!“

„Hann stað­festir að í öllum atriðum er frá­sögn Vil­hjálms af fund­inum rétt.“

Jónas Garð­ars­son, for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands var einnig á við­staddur fund­inn með Þorgerði Katrínu þar sem laga­setn­ing var rædd. Ekki náð­ist í Jónas við vinnslu frétt­ar­innar, þar sem hann er á sjó. Á síðu SÍ kom hins­vegar inn til­kynn­ing í dag. Þar segir: „Vegna sam­skipta sjó­manna við sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og við­tala við Vilhjálm Birg­is­son for­manns VLFA um málið, þar sem sjó­mönnum var hótað laga­setn­ingu til að stöðva verk­fall sjó­manna, skal tekið fram að for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, Jónas Garð­ars­son, var á umræddum fundi með sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Hann stað­festir að í öllum atriðum er frá­sögn Vil­hjálms af fund­inum rétt.“

Því er ljóst að ann­að­hvort fara tals­menn sjó­manna­for­yst­unnar með rangt mál, eða Þor­gerður Katrín segir ekki rétt frá. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár