Hrópaði á Jesú á meðan hann var tekinn lögreglutaki

Lög­reglu­menn héldu hæl­is­leit­and­anum Eze Okafor niðri á jörð­inni á meðan hann hróp­aði nafn frels­ar­ans. „Eins og maður væri að horfa upp á mann leiddan til aftöku,“ segir sjón­ar­vottur sem vill ekki láta nafns síns getið.

Hrópaði á Jesú á meðan hann var tekinn lögreglutaki
Sendur úr landi Eze Okafor var sendur nauð­ugur með flugi til Sví­þjóðar í morgun eftir rúm­lega fjög­urra ára vist á Íslandi. Mynd: Sigtryggur Ari

Eze Okafor, hæl­is­leit­andi frá Nígeríu, hróp­aði ítrekað á Jesú á meðan lög­reglu­menn tóku hann lög­reglutaki á flug­stöð Leifs Eiríks­sonar í morgun. Vitni sem Stundin hefur rætt við segir tvo lög­reglu­menn hafa setið ofan á honum áður en þeir tóku hann með valdi í gegnum flug­stöð­ina og inn í flug­vél Icelandair sem var á leið­inni til Sví­þjóðar. Atvikið má að hluta til sjá á mynd­bandi sem birt hefur verið á Facebook-síðu sjál­boða­liða­sam­tak­anna No Borders. Tvær konur stóðu upp í flug­vél Icelandair rétt fyrir flug­tak og mót­mæltu brott­vísun Eze harð­lega. Konurnar sem eru með­limir No Borders sam­tak­anna voru síðar hand­teknar og færðar í varð­hald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár