Mynd: Heiða Helgadóttir

Ný talskona útgerðarmanna: „Þjóðin getur ekki átt neitt“

Helstu hags­muna­sam­tök Íslands hafa gengið í gegnum ham­skipti á síð­ustu árum og skipt um nafn. Stundin fylgir eftir pen­ing­unum og tengsl þeirra við vald og fjöl­miðla. Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, nýr fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, segir að skattar séu ofbeldi og telur að þjóðin geti ekki átt neitt. Hún berst gegn því að útgerð­ar­menn þurfi að borga meira í sam­eig­in­lega sjóði vegna notk­unar auð­lind­ar­innar.

„Þjóðin getur ekki átt neitt,“ segir Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, nýr fram­kvæmda­stjóri helstu hags­muna­sam­taka lands­ins, sem berj­ast gegn því að greiða hærra gjald vegna nýt­ingar á sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar.

Hags­muna­sam­tök útgerð­ar­manna, sem nýta helstu auð­lind Íslend­inga, hafa tekið stakka­skiptum síð­ustu ár um leið og þau hafa barist gegn rót­tækum kerf­is­breyt­ingum. Þetta er saga hags­muna, pen­inga og átaka, sem hófst við upp­haf seinni heims­styrj­aldar. 

Þann 17. jan­úar 1939 hitt­ust 50 útgerð­ar­menn á fundi í Reykja­vík og stofn­uðu Lands­sam­band íslenskra útvegs­manna, LÍÚ. Var hug­myndin með stofn­un­inni sú að hags­munum útgerð­ar­manna um land allt gæti verið gætt af einu og sama félag­inu. LÍÚ átti svo eftir að vaxa og efl­ast næstu ára­tugi, félags­menn og aðild­ar­fé­lög áttu eftir að styrkja stjórn­mála­menn og flokka, standa að fjöl­miðla­út­gáfu og beita þrýst­ingi sínum til auk­innar hag­sældar sinna félaga. 

Arð­bærasta nátt­úru­auð­lind Íslands er fisk­ur­inn. Hann er okkar olía. Öldum saman var sjó­mennska stunduð sem auka­bú­grein sam­hliða hefð­bundnum búskap, en með til­komu vél­báta tók það að breyt­ast. Sífellt fleiri fóru að sinna alfarið sjó­mennsku og gekk sjó­sókn svo vel að mun meiri fiskur veidd­ist en land­inn gat torgað. Útflutn­ingur á fiskaf­urðum hófst þá fyrir alvöru og hefur, með miklum sveiflum og breyt­ingum, staðið til okkar tíma.

Síðustu ára­tugi hefur svo þessi útflutn­ingur verið hryggjar­stykkið í efna­hags­lífi þjóð­ar­innar. Útgerð­irnar hafa orðið stærstu og öfl­ug­ustu fyr­ir­tæki lands­ins og eig­endur þeirra skatta­kóngar og -drottn­ingar. Þegar um svo gríð­ar­lega fjár­muni og hags­muni þeim tengdum er að ræða er svo nán­ast öruggt að átök muni eiga sér stað. 

Ólíkar aðferðir útvegs­manna við það að verja hags­muni sína og koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi lögð­ust alla tíð mis­jafnt í almenn­ing. Fékk LÍÚ á sig ákveðna ímynd auð­söfn­unar og sér­hags­muna. Á árunum eftir hrun hefur sú krafa orðið hávær­ari en nokkru sinni fyrr að útgerðin greiði aukna hlut­deild af auð­lind­arent­unni í sjáv­ar­út­vegi til þjóð­ar­innar.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa notið góðs af lægra gengi krón­unnar og ár eftir ár eru sagðar fréttir af arð­greiðslum og miklum gróða eig­enda fyr­ir­tækj­anna. Á sama tíma barð­ist LÍÚ af hörku gegn hvers kyns breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og hærri veiði­gjöldum. Þetta varð til þess að sam­tökin urðu umdeild­ari. 

„Við erum að taka okkur alveg í gegn.“

Þann 30. októ­ber 2014 fór svo fram síð­asti fundur LÍÚ. Þá sam­ein­að­ist LÍÚ Samtökum fisk­vinnslu­stöðva undir hinu nýja heiti: Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, SFS. Án þess að nokkur tæki eftir voru umdeild­ustu hags­muna­sam­tök lands­ins búin að taka stakka­skiptum.

Kolbeinn Árnason
Kolbeinn Árnason Leiddi sam­ein­ing­una og var fram­kvæmd­ar­stjóri þar til Heiðrún tók við.

Yfirlýst mark­mið sam­ein­ingar og nafn­breyt­ingar var sögð vera „sú að okk­ur þykir þessi tvö fé­lög sem hafa verið starf­andi á svið­inu hafa skort þá breidd sem þarf til að ræða um sjáv­ar­út­veg­inn eins og hann er í dag,“ sagði Kolbeinn Árnason, sem þá var nýr og fram­sæk­inn fram­kvæmda­stjóri LÍÚ. „Við erum að taka okkur alveg í gegn,“ sagði hann við sama til­efni. Þótt yfir­lýstur til­gangur hafi ekki verið að fjar­lægja sam­tökin úr hinni almennu umræðu þá tókst það samt full­kom­lega. Fönixinn SFS reis upp úr ösku LÍÚ. 

Ný andlit 

Nafna og ímynd­ar­breyt­ingar eins og LÍÚ gekk í gegnum er kostn­að­ar­samt og umfangs­mikið fram­tak, segir Andrés Jónsson, almanna­teng­ill. „Fyr­ir­tæki þurfa  í raun­inni að vera komin á enda­stöð með það nafn og vöru­merki sem þau hafa verið að starfa undir. Þannig það þarf ansi mikið til.“ Breyt­ingar af þessu tagi sé aðeins ráð­ist í að mjög yfir­lögðu ráði og afar sjald­gæft sé að rót­gróin vöru­merki á Íslandi fari í eins gagn­gera yfir­haln­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fiskveiðar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár