Halldór Ásgrímsson þungt haldinn á Landspítalanum

Fyrrum for­sæt­is­ráð­herra er sagður hafa fengið hjarta­á­fall í sum­ar­bú­stað sínum.

Halldór Ásgrímsson þungt haldinn á Landspítalanum

Halldór Ásgríms­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er nú haldið sof­andi á Land­spít­al­ann. Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­manns for­stjóra Land­spít­al­ans,  segir í sam­tali við Stundina að Halldór hafi verið færður á Land­spít­alan á laug­ar­dag.

Að hennar sögn var hann þungt hald­inn við komu á spít­al­ann. Samkvæmt frétt á dv.is fékk hann hjarta­á­fall síð­ast­lið­inn föstu­dag og var hann þá staddur í sum­ar­bú­stað sínum við Álfta­vatn. Samkvæmt sömu frétt var hann fluttur með sjúkra­bíl til Reykja­víkur. Að sögn Önnu fékk Halldór hjarta­á­fall aðfara­nótt laug­ar­dags. 

„Það sem við getum sagt á þessum tíma­punkti er að Halldór Ásgríms­son liggur þungt hald­inn á gjör­gæsl­unni við Hring­braut,“ segir Anna Sigrún. 

Halldór er 67 ára gam­all og starf­aði hann sem fram­kvæmda­stjóri Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar til árs­ins 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár