Guðni sendir Trump heillaóskir

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands hefur sent nýkjörnum for­seta Banda­ríkj­anna heilla­óskir. Í bréf­inu leggur Guðni áherslu á sam­eig­in­leg gildi ríkj­anna; „við styðjum ein­huga frelsi til hugs­ana og tján­ingar, jafn­rétti kynj­anna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafti eða trú.“

Guðni sendir Trump heillaóskir

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur sent Donaldi Trump, nýkjörnum for­seta Banda­ríkj­anna, heilla­óskir. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá skrif­stofu for­seta Íslands. Í bréfi Guðna til Trump segir meðal ann­ars að enda þótt Banda­ríkin væru eitt stærsta lýð­ræð­is­ríki ver­aldar en Ísland eitt hið minnsta þá deildu þjóð­irnar mörgum mik­il­vægum gildum; „við styðjum ein­huga frelsi til hugs­ana og tján­ingar, jafn­rétti kynj­anna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafi eða trú.“

Eins og Stundin greindi frá fyrr í dag þá hefur Guðni ekki tjáð sig við fjöl­miðla í dag vegna for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum. 

Tilkynning skrifstofu forseta í heild:

HEILLAÓSKIR TIL NÝKJÖRINS FORSETA BANDARÍKJANNA

Forseti hefur sent Donald Trump, nýkjörnum for­seta Banda­ríkj­anna, heilla­óskir frá sér og íslensku þjóð­inni í kjöl­far sig­urs hans í for­seta­kosn­ing­unum.

Forseti árétt­aði í kveðju sinni rót­gróna sam­vinnu og vin­áttu þjóð­anna tveggja og langa sam­eig­in­lega sögu sem teygði anga sína allt aftur til þess er sæfar­endur frá Íslandi og Græn­landi tóku land í Norður-Ameríku fyrir meira en þús­und árum. Öldum síðar hefðu þús­undir Íslend­inga flutt búferlum vestur um haf og leitað nýrra tæki­færa sem nýbúar í frjálsum sam­fé­lögum. 

Enda þótt Banda­ríkin væru eitt stærsta lýð­ræð­is­ríki ver­aldar en Ísland eitt hið minnsta deildu þjóð­irnar mörgum mik­il­vægum gildum; við styðjum ein­huga frelsi til hugs­ana og tján­ingar, jafn­rétti kynj­anna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafti eða trú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?
ErlentForsetakosningar í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár