Gamla konan komin í kjallaraholu eftir að sáttatilraun strandaði

Aðstand­endur níræðar konu krefj­ast rétt­lætis en þeir telja að Garðabær beri ábyrgð á að ein­býl­is­húsið sem hefur verið hennar heim­ili í ára­tugi sé ónýtt. Barna­barn kon­unnar segir að Garðabær hafi rétt fram sátt­ar­hönd þegar málið komst í hámæli en síðan hafi ekk­ert gerst.

Goðatún
Goðatún Hús kon­unnar er ónýtt og fær hún engar bætur frá Garðabæ.

Umtals­vert hefur verið fjallað um dóms­mál níræðrar konu gegn heimabæ sínum, Garðabæ, eftir að hún fór í skaða­bóta­mál við bæinn vegna fram­kvæmda sem hún taldi að hefðu ollið skemmdum á ein­býl­is­húsi hennar. Árið 2013 vann konan málið í Hér­aðs­dómi Reykja­ness og var Garðabæ gert að borga henni 35 millj­ónir krónur. Þeim dómi var áfrýjað og síð­ast­lið­inn nóv­em­ber fór svo að Hæsti­réttur dæmdi Garðabæ í vil.

Konan óskar eftir nafn­leynd en aðstand­endur hennar hafa komið á fót Facebook-síðu fyrir hana og krefj­ast rétt­lætis. 

Héðinn Ásbjörns­son, barna­barn kon­unnar, segir í sam­tali við Stundina að amma sín búi nú í kjall­ara­holu í Garðabæ, auk þess sem hún borgi enn fast­eigna­gjöld vegna ónýta húss­ins sem stendur við Goðatún. 

„Amma mín er eigna­laus og líf­eyrir hennar er í rúst. Hún er búin að búa þarna í nærri fjöru­tíu ár. Húsið var dæmt ónýtt og hún er bara að leigja ein­hverja holu,“ segir Héðinn.

„Hún er búin að búa þarna í nærri fjöru­tíu ár. Húsið var dæmt ónýtt og hún er bara að leigja ein­hverja holu.“ 

Gagnrýnir Hæstarétt

Héðinn gagn­rýnir harð­lega vinnu­brögð Hæsta­réttar í máli ömmu sinnar og segir þau ekki til þess fallin að auka trú­verð­ug­leika á því dóm­stigi. „ Allur þessi aðdrag­andi að upp­kvaðn­ingu í Hæsta­rétti var svo vit­laus að hálfa væri nóg. Þegar það átti að taka málið fyrir í Hæsta­rétti loks­ins þá fékk lög­maður Garða­bæjar í bakið þannig að rétt­ar­höldum var frestað um þrjár vikur. Í milli­tíð­inni var skipt um dóm­aratríó. Þetta sama dóm­aratríó gat ekki kom­ist að nið­ur­stöðu þannig að mál­inu var vísað frá Hæsta­rétti sem heyrir alveg til und­an­tekn­inga,“ segir Héðinn.

Ný skýrsla lögð fyrir Hæstarétt

Héðinn segir að ein helsta ástæða þess að Hæsti­réttur hafi dæmt ömmu sinni í óhag sé skýrsla sem lögð hafi verið  fyrir Hæsta­rétt en ekki hér­aðs­dóm. „Vegna þess að það voru svo miklir hags­munir í húfi fyrir Garðabæ gátu þeir ekki kveðið upp dóm sem byggði á þeim gögnum sem lágu fyrir í mál­inu á þessum tíma­punkti. 

Síðan liðu nokkrar vikur og þá var skip­aður nýr dómur með fimm dóm­urum. Í milli­tíð­inni kom sækj­andi Garða­bæjar með ný gögn sem byggðu á skýrslu um hús nágranna­konu ömmu minnar. Þar bendir allt til þess að húsið sé svo illa byggt. Dómurinn var svo byggður á þeirri skýrslu, en ekki þeim sem lágu fyrir,“ segir Héðinn.

Sáttatillaga eftir Kastljós

Kastljós fjall­aði um málið í des­em­ber. Héðinn segir að eftir það hafi margir haft sam­band við sig vegna máls ömmu sinnar. „Kast­ljósið vakti mjög hörð við­brögð í sam­fé­lag­inu og maður fékk skeyti og kveðjur frá fólki sem maður þekkti ekki.

Allt fór á fullt, þetta var mikið í umræð­unni, og þá kom sátta­til­laga frá Garðabæ, við ættum að koma og ræða málin. Við fórum þangað á nýju ári í jan­úar og áttum að koma með til­lögu að sátt. Við gerðum það en síðan gerð­ist ekk­ert.

Í mars kom svo í ljós að þeir ætla ekk­ert að gera fyrir okkur. Þetta var bara til að drepa niður málið í fjöl­miðlum, svo það yrði ekki ein­hver smán­ar­blettur á Garðabæ,“ segir Héðinn. 

Stundin óskaði eftir skýr­ingum frá bænum en þaðan hafa svör ekki enn borist. 

„Við fórum þangað á nýju ári í jan­úar og áttum að koma með til­lögu að sátt. Við gerðum það en síðan gerð­ist ekk­ert.“

Mýrin að þorna upp

Héðinn segir að hand­vömm Garða­bæjar, sem málið snú­ist allt um, sé hvernig staðið var að því að skipta um jarð­veg við göt­una. „Málið snýst um að fram­kvæmdir sem voru unnar af Garðabæ árið 2008 gerðu það að verkum að hús sem var byggt miðað við þáver­andi bygg­ing­ar­reglu­gerðir og bygg­ing­ar­leyfi liggur undir skemmdum er ónýtt.

Það er búið að henda fleiri fleiri millj­ónum í málsvörn og sókn. Við reyndum að fara samn­inga­leið­ina áður en farið var í máls­sókn. Húsið er allt að síga og er á fleygi­ferð vegna þess að það er búið að grafa göt­una og skipta um jarð­veg. Mýrin sem húsið stóð á er að þorna upp þannig að jarð­veg­ur­inn heldur hús­inu ekki uppi lengur,“ segir Héðinn.

Uppfært klukkan 15:30

Hulda Hauks­dóttir, upp­lýs­inga- og menn­ing­ar­full­trúi Garða­bæjar, segir í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar að bær­inn kann­ist ekk­ert við að hafa haft frum­kvæði að sér­stakri sátt­ar­gerð í mál­inu. Hún segir að lög­maður hús­eig­enda hafi gert Garðabæ sölu­til­boð vegna húss­ins að fjár­hæð 47 millj­ónir kr. Það bréf var tekið fyrir á bæj­ar­fundi og vísar Hulda í eft­ir­far­andi bókun af fundi bæj­ar­ráðs 3. mars síð­ast­lið­inn:

„Í dómi Hæsta­réttar, sem kveð­inn var upp 27. nóv­em­ber sl. var Garðabær sýkn­aður af kröfu hús­eig­anda Goðatúns 34 um greiðslu bóta vegna skemmda á hús­næð­inu sem hús­eig­andi taldi að væru til­komnar vegna fram­kvæmda á vegum Garða­bæjar við göt­una Silf­ur­tún. Bæjarráð sam­þykkir með vísan til nið­ur­stöðu dóms Hæsta­réttar að leggja til við bæj­ar­stjórn að hafna sölu­til­boði bréf­rit­ara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár