Gagnrýnir Sigríði og hvetur flokksmenn til að lesa skrif sín um lýðræði

Ingi­björg Sólrún tjáir sig um for­manns­kjör

Gagnrýnir Sigríði og hvetur flokksmenn til að lesa skrif sín um lýðræði

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist hugsi yfir stöðu síns gamla flokkss. Henni renni til rifja að sjá for­manns­fram­bjóð­end­urna Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur og Árna Pál Árnason „í aðal­hlut­verkum í þeim darraða­dansi sem fram fór um helg­ina á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar“.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Ingi­bjargar Sólrúnar. Þar beinir hún spjótum sínum að Sigríði Ingi­björgu og gagn­rýnir hana fyrir að hafa boðið sig fram með jafn skömmum fyr­ir­vara og raun ber vitni:

„Það er ekk­ert athuga­vert við það að bjóða sig fram gegn sitj­andi for­manni en Sam­fylk­ingin hefur mótað sér ákveðnar reglur um hvernig for­manns­kjör eigi að fara fram og það er mjög mik­il­vægt að þær reglur séu virtar en ekki reynt að nýta glufu í reglu­verk­inu til að steypa sitj­andi for­manni. Formaður verður að hafa skýrt umboð frá flokknum. Árni fékk þetta umboð þegar 3,474 flokks­menn greiddu honum atkvæði sitt í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu innan flokks­ins í árs­byrjun 2013. Í for­manns­kjör­inu á lands­fund­inum í gær tóku þátt 487 flokks­menn og Árni Páll vann sigur með eins atkvæðis mun. Setjum sem svo að þetta hefði farið á hinn veg­inn og Sigríður Ingi­björg hefði verið kosin for­maður með 241 atkvæði. Í hvaða stöðu hefði það sett hana sem for­mann? Í hvaða stöðu hefði hún verið gagn­vart öllum þeim flokks­mönnum sem kusu Árna Pál í lýð­ræð­is­legri kosn­ingu fyrir rúmum tveimur árum?“

Segir hún fram­boð Sigríðar hafa verið mis­ráðið. Það hefði aldrei getað farið öðru­vísi en illa, skila ann­að­hvort löskuðum for­manni eða for­manni með óljóst umboð. 

„Ýmsir félagar mínir í Sam­fylk­ing­unni hafa fært fram þau rök að form­lega hafi ekki verið neitt rangt við for­manns­fram­boð á síð­ustu stundu. Reglur banni það ekki. Það er í sjálfu sér rétt en mér finnst það mjög miður ef það er orðin við­tekin skoðun í Sam­fylk­ing­unni að lýð­ræðið sé fyrst og fremst form en ekki ferli sem bygg­ist á umræðu. Með því að stytta sér leið með þessum hætti á lands­fundi var verið að hafa þá umræðu af flokks­mönnum, sem þeir eiga lýð­ræð­is­legan rétt á sam­kvæmt reglum flokks­ins.” 

Loks hvetur Ingi­björg Sam­fylk­ing­ar­fólk til að lesa bók sem hefur að geyma greinar og ræður eftir hana sjálfa, heftið „Mín eigin orð“ sem Sam­fylk­ingin gaf út um ára­mótin í til­efni sex­tugs­af­mælis hennar. „Að lokum legg ég til að flokks­menn blaði í heft­inu 'Mín eigin orð' sem kom út 31. des­em­ber s.l. Þar eru nokkrar greinar um lýð­ræði,“ skrifar Ingi­björg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár