Gagnrýna ógegnsæi við sölu ríkiseigna og kalla eftir þingslitum: „Brunaútsala undir pólitískri tímapressu?“

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar og Birgitta Jóns­dóttir Pírati telja rétt­ast að þing­inu verði slitið og boðað taf­ar­laust til kosn­inga. Þing­for­seti segir fjar­vistir eðli­legar.

Gagnrýna ógegnsæi við sölu ríkiseigna og kalla eftir þingslitum: „Brunaútsala undir pólitískri tímapressu?“

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar, sagði á Alþingi í dag að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefði vart annað fyrir stafni en að afhenda einka­vinum rík­is­eignir. „Gefum þeim ekki lengri tíma til þess og slítum þessu þingi,“ sagði hún undir liðnum störf þings­ins. 

Ríkið seldi hlut sinn í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum fyrir 3,9 millj­arða á mánu­dag­inn. Í gær vakti Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, máls á þessu og velti því upp hvort farið væri of geyst í sölu rík­is­eigna.

„Af hverju liggur svona á? Hvers vegna þurfti að selja allan hlut­inn í fast­eigna­fé­lag­inu í hvelli meðan spáð er hækkun á fast­eigna­verði fram í tím­ann? Væri hægt að ná meiru fyrir hlut­inn með því að gera þetta smátt og smátt?“ sagði Svandís og bætti því við að ferlið hefði að þessu sinni verið und­ar­lega lokað; útboðið hefði opnað á föstu­dag og gengið frá söl­unni á mánu­deg­inum þar á eftir.

„Fjár­mála­ráð­herra hlýtur að þurfa að svara því hvort til standi að ljúka við sölu þess­ara eigna í hálf­lok­uðu ferli. Er hags­munum rík­is­sjóðs borgið með þessu móti? Er verið að selja á hæsta mögu­lega verði eða er verið að flýta aðgerðum í skjóli nætur í aðdrag­anda kosn­inga? Er um að ræða bruna­út­sölu undir póli­tískri tíma­pressu? Þessum spurn­ingum þarf að svara,“ sagði Svandís. 

Slæm mæting og þingfundi frestað

Í dag var atkvæða­greiðslum þriggja mála á Alþingi frestað vegna slakrar mæt­ingar. Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, sagði að eðli­legar ástæður væru fyrir þessu; þing­menn væru til að mynda skuld­bundnir erlendis og í kjör­dæmum sínum. 

Sigríði Ingi­björgu fannst hins vegar „alger­lega absúrd að vera á þing­fundi þar sem eina dag­skrár­málið er störf þings­ins“ og sagði: „Hér áttu þó að vera atkvæða­greiðslur, og er það nú óvenjurýrt í roð­inu, en þeim þurfti að fresta vegna slakrar mæt­ingar. Svo á morgun eru óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir vissu­lega, kannski atkvæða­greiðslur ef ein­hverjir mæta til þess að taka þátt í þeim og ein sér­stök umræða sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur óskað eftir. Okkur var sagt að við yrðum að vera hér, það væri svo áríð­andi að halda áfram vegna allra þeirra stóru mála sem biðu. Það fer lítið fyrir þeim. Og ótt­ast var, hvað? Að stjórn­ar­and­staðan mundi þvæl­ast fyrir? Ég segi bara: Ég sé ekki ástæðu til að vera hér.“

Þá benti hún á að enn væri beðið eftir frum­vörpum um almanna­trygg­ingar og fæð­ing­ar­or­lof. „Þetta eru mál sem varða miklu fyrir fjöld­ann og skipta máli fyrir fjölda fólks í sam­fé­lag­inu. Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra hefur gefið í skyn að það sé nú alló­lík­legt vegna atkvæða­greiðslu í rík­is­fjár­mála­á­ætlun að mál­efni félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra fái hér greiða með­ferð. Þau eru ekki einu sinni komin inn í rík­is­stjórn. Ég sé ekki fyrir mér hvernig við eigum að geta lokið þeim á þessu þingi. Verið er að hafa alþing­is­menn, en það sem verra er, kjós­endur að athlægi. Og talað er eins og hér sitji rík­is­stjórn með erindi. Hún hefur ekk­ert erindi annað en það að afhenda eignir einka­vinum,“ sagði hún.

Segir fjarvistir eðlilegar

Einar K. Guð­finns­son svar­aði athuga­semdum Sigríðar um stöðu þings­ins:

„Það er alvana­legt þegar svo stendur á í störfum þings­ins að ekki liggja mörg mál fyrir að þá sé vikið út frá starfs­á­ætlun í þeim skiln­ingi að felldir eru niður þing­fundir og t.d. settir á þing­nefnd­ar­fundir í stað­inn. Það var ætlun for­seta að hér færu fram atkvæða­greiðslur í dag jafn­framt því sem þessi umræða færi fram. Forseti hefur lagt sig fram um að tryggja að bæði dag­skrár­liðir eins og störf þings­ins og óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir til ráð­herra geti átt sér stað vegna þess að for­seti leggur mikla áherslu á það að hinar póli­tísku umræður geti farið fram í sölum þings­ins eins og eðli­legt er. Þess vegna var það nið­ur­staða for­seta að halda sér við dag­skrá fund­ar­ins í dag. Í ljós kom hins vegar að það eru all­margar fjar­vistir þing­manna af eðli­legum ástæðum, m.a. vegna skuld­bind­inga þing­manna í alþjóða­nefndum sem eru líka hluti af störfum okkar alþing­is­manna og sömu­leiðis skuld­bind­ingar í kjör­dæmum sem for­seti telur líka mik­il­vægt að þing­menn geti rækt og sinnt. Þess vegna eru ekki atkvæða­greiðslur í dag.“

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók undir þetta:

„Ég kem hér upp sem stjórn­ar­þing­maður og ætla aðeins að bera í bætifláka fyrir stjórn­ar­flokk­ana vegna þess ein­fald­lega að í nefndum sitja mörg stór og mik­il­væg mál sem bæði ráð­herrar og stjórn­ar­meiri­hlut­inn vilja gjarnan að verði kláruð. Á þeim dögum frá því að þing hófst núna í ágúst hefur verið mælt fyrir þeim málum sem kynnt var í vor að mælt yrði fyrir, það væri mál sem snerti afnám hafta, mál sem snertu sér­eign­ar­stefn­una í beinum tengslum við frum­vörp hæstv. félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra sem þá voru flutt, mál sem voru í það minnsta í sam­komu­lagi á milli stjórn­ar­flokk­anna. Það er líka frum­varp í efna­hags- og við­skipta­nefnd um vexti og verð­trygg­ingu. Vissu­lega koma þessi mál fram nú á haust­dögum á þessu þingi, þurfa að fara til umsagnar og vera síðan þar í vinnslu. Til þess að allrar sann­girni sé gætt þá eru þetta þau stóru mál sem m.a. var til­kynnt í vor þegar gengið var frá málum á vor­þingi að kæmu hingað í haust. En við þekkjum það verk­lag sem hér er að mælt er fyrir máli, þau eru send til umsagnar og síðan koma þau inn til vinnslu. Önnur mál eru í vinnslu í nefndum. Kannski getum við sagt að þau komi seint út úr nefnd­unum til þess að koma hingað inn. Ég tek undir með þeim sem hafa talað að það er sér­kenni­leg staða á mið­viku­degi 24. ágúst að í þing­inu skuli ein­göngu vera störf þings­ins til umræðu. Það er mjög sér­kenni­legt og hefði farið betur ef hlut­irnir væru öðru­vísi. En ef allrar sann­girni er gætt þá vita þing­menn, jafnt stjórn­ar­liðar sem stjórn­ar­and­staða, að það eru mál inni í nefndum sem eru mik­il­væg fyrir alla þjóð­ina óháð póli­tísku flokk­unum.“

 

Svandís Svav­ars­dóttir tjáir sig um stöðu þing­mála á Facebook í dag: 

 

Birgitta Jóns­dóttir tekur undir þetta og skrifar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár