Endurkjörinn í stjórn RÚV: Telur Sigmund hafa sætt árásum og vill öll Panama-skjöl „upp á borð“

Kristinn Dagur Giss­ur­ar­son hefur und­an­farnar vikur vakið athygli á pistlum þar sem Rík­is­út­varpið er sakað um hernað gegn Sigmundi Davíð. Kristinn var end­ur­kjör­inn í stjórn RÚV í gær.

Kristinn Dagur Giss­ur­ar­son og Guð­laugur G. Sverr­is­son, sem báðir hafa farið hörðum orðum um efn­is­tök og frétta­flutn­ing Rík­is­út­varps­ins, verða áfram full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins í stjórn RÚV. Kosið var í stjórn­ina á Alþingi í gær en aðal­menn verða, auk Kristins og Guðlaugs, þau Mörður Árnason, Gunnar Sturlu­son, Úlf­hildur Rögn­valds­dóttir, Jón Ólafsson, Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, Friðrik Rafnsson og Lára Hanna Ein­ars­dóttir.

Kristinn Dagur hefur sýnt frétta­stofu RÚV tals­vert aðhald í gegnum tíð­ina, meðal ann­ars á Facebook-síðu sinni sem er opin og aðgengi­leg öllum. Hefur hann verið gagn­rýn­inn á frétta­flutn­ing af ýmsum málum, sér­stak­lega þó af mál­efnum sem tengj­ast Fram­sókn­ar­flokknum. Und­an­farnar vikur hefur Kristinn deilt pistlum, meðal ann­ars eftir þing­menn flokks­ins, þar sem Rík­is­út­varpið er sakað um að stunda hernað gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár