Fréttir um næturgest Biebers fjarlægðar

Fjöl­miðlar birtu nafn og myndir af stúlku og sögðu hana hafa sofið hjá Justin Bieber. Frétt­irnar hafa nú verið fjar­lægðar. Aðjúnkt í blaða- og frétta­mennsku telur nafn­birt­ing­una brot á siða­reglum blaða­manna.

Fréttir afþrey­ing­ar­miðl­anna Hún.is og Frétta­nets­ins, um stúlk­una sem stór­stjarnan Justin Bieber eyddi nótt með þegar hann dvaldi hér á landi í síð­ustu viku, hafa verið fjar­lægðar að beiðni fjöl­skyldu stúlkunnar. Þetta stað­festir Kidda Svarfdal rit­stjóri Hún.is í sam­tali við Stundina. 

Á mið­viku­dag birti Hún.is Instagram-myndir af stúlkum sem voru sagðar hafa eytt nótt­inni með Justin Bieber. Þar var einnig full­yrt að „ein stúlkn­anna hafi farið með Justin upp á hót­el­her­bergi.“ Fleiri miðlar fylgdu í kjöl­farið og end­ur­sögðu frétt Hún.is. Frétta­netið gekk hins vegar skref­inu lengra og nafn­greindi stúlk­una sem átti hafa farið með söngv­ar­anum á hót­el­her­bergið. Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar var „Ég fokk­ing reið jb“ en þar var vísað í skjá­skot af SMS-skila­boðum sem mið­ill­inn hafði undir höndum.

Frétt­irnar vöktu hörð við­brögð í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla sem og á sam­fé­lags­miðlum. Sumir beindu orðum sínum að stúlk­unum á meðan aðrir for­dæmdu fjöl­miðl­ana fyrir nafn­birt­ing­una og druslu­skömmun. 

Samræmist ekki siðareglum

Val­gerður Anna Jóhanns­dóttir, aðjúnkt í blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands, telur nafn­birt­ing­una ekki sam­ræm­ast siða­reglum blaða­manna eða þeim fag­legu kröfum sem gerðar eru til fjöl­miðla­fólks. „Hér hefur það ekki verið lenska að birta jafn per­sónu­legar upp­lýs­ingar eins og þessar um venju­legt fólk. Jafnvel þótt að um opin­bera per­sónu hafi verið að ræða þá teld­ist þetta utan marka og ekki eitt­hvað sem almenn­ingur á heimt­ingu á að vita því það varði ein­hverja hags­muni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár