Framlög til Þjóðkirkjunnar aukast hlutfallslega meira en til Landspítalans

Fjár­laga­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar gerir ráð fyrir tals­verðri hækkun fram­laga til Þjóð­kirkj­unnar. Hlutfall þeirra sem skráðir eru í Þjóð­kirkj­una fer hins vegar hratt lækk­andi.

Framlög til Þjóðkirkjunnar aukast hlutfallslega meira en til Landspítalans

Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi næsta árs munu fram­lög rík­iss­ins til Þjóð­kirkj­unnar hækka um tæp 8,8 pró­sent frá síð­asta ári. Til sam­an­burðar hækka fram­lög rík­is­ins til Land­spít­al­ans um tæp­lega 7,3 pró­sent á milli ára.

Framlög til Land­spít­al­ans hækka um fjóra millj­arða sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu en for­stjóri Land­spít­al­ans hefur sagt að spít­al­inn þurfi á 12 millj­arða aukn­ingu að halda vegna lang­tíma­und­ir­fjár­mögn­unar, fjölg­unar Íslend­inga, við­halds á tækjum, tækja­kaupa, aldr­aðra, eldri bygg­inga, rekst­urs jáeindaskanna, leið­rétt­ingar launa, kennslu­starfa og fleira.

Fyrir utan 8,8 pró­sent aukn­ingu á fram­lögum rík­is­ins til Þjóð­kirkj­unnar hækka sókn­ar­gjöld um tæp­lega 2,5 pró­sent og fram­lag rík­is­ins til Kirkju­mála­sjóðs og Jöfn­un­ar­sjóðs sókna hækkar einnig um tæp 2,5 pró­sent.

Sóknargjöld hækka - allir borga

Starfs­stjórn fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, leidd af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra, lagði í gær fram frum­varp til fjár­laga 2017. Samkvæmt því munu fram­lög rík­is­ins til Þjóð­kirkj­unnar nema 2.075,6 millj­ónum króna á næsta ári, en voru 1.907,6 millj­ónir króna í fyrra. Þá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár