Formaður Trans Ísland: Vill að konur megi heita Sigmundur

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir segir það vera mikið rétt­inda­mál fyrir trans­fólk að lögum um Manna­nafna­nefnd verði breytt.

Formaður Trans Ísland: Vill að konur megi heita Sigmundur

Reglu­lega sprettur upp umræða um Manna­nafna­nefnd og meinta íhalds­semi stofn­un­ar­innar. Óttarr Proppé þing­maður lagði nýverið fram frum­varp um að nefndin verði lögð niður og öll ákvæði í tengslum við hana  felld brott.

Manna­nafna­nefnd gagn­rýnir frum­varpið harð­lega í umsögn sinni og segir meðal ann­ars var­huga­vert  „að gera slíka grund­vall­ar­breyt­ingu á nafna­kerf­inu sem lagt er til í frum­varp­inu en þá yrði til að mynda hægt að nefna dreng Þorgerði og stúlku Sigmund.“

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, for­maður Trans-Ísland og trans­kona, segir í sam­tali við Stundina það vera mikið rétt­inda­mál fyrir trans­fólk að lögum um Manna­nafna­nefnd verði breytt. „Það myndi breyta svo miklu fyrir trans­fólk að geta breytt nafni sínu því trans­fólk er að lenda í svo lenda í svo mörgu þegar það er til dæmis að ferð­ast eða það er að borga með korti ef það stendur Jón á kort­inu. Fólk hefur verið sakað um að stela kortum og jafn­vel stoppað af lög­regl­unni. Þannig að þetta hefur mjög leið­in­legar afleið­ingar. Þetta er í raun­inni tíma­skekkja, byggt á gömlum hefðum um að vilja flokka fólk und­an­tekn­ing­ar­laust í karl og kona,“ segir Ugla.  

Hún bendir sömu­leiðis á að margt trans­fólk vilji ekki skil­greina sig sem annað hvort karl eða kona. „Það myndi algjör­lega auð­velda trans­fólki mikið, og sömu­leiðis trans­fólki sem vill ekki endi­lega skil­greina sig sem karl eða konu, sem vill kannski bæði heita karl­manns- og kven­manns­nafni. Ef þú ert skráður líf­fræði­lega karl­maður í þjóð­skrá, þá máttu ekki bera kven­manns­nafn,“ segir Ugla.

„Það var aug­ljóst af þessum orðum um Sigmund og Þorgerði að þau eru ekki „pro“ hvað varðar trans­fólk.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár