Fordæmir skopmynd Morgunblaðsins og segir hana birtingarmynd mótlætis

Einn skipu­leggj­anda hinsegin nýyrða­sam­keppni for­dæmir skop­mynd Morg­un­blaðs­ins. „Mér finnst þetta sýna að bar­átt­unni er hvergi nærri lokið, sér­stak­lega fyrir fólk sem fellur fyrir utan þess­arar kyntví­hyggju,“ segir Þorbjörg Þor­valds­dóttir.

Fordæmir skopmynd Morgunblaðsins og segir hana birtingarmynd mótlætis

„Átti ekki beint von á svona eitr­uðum við­brögðum við sak­lausri nýyrða­sam­keppni. Er hann að líkja hinsegin fólki við Franken­stein? Alveg hrika­lega fyndið, eða þannig. Ágæt ástæða til að hætta við­skiptum við Morg­un­blaðið, ef þið eigið enn í þeim,“ skrifar Þorbjörg Þor­valds­dóttir, einn skipu­leggj­anda hinsegin nýyrða­sam­keppni Sam­tak­anna '78, á Facebook-síðu sinni. Með færsl­unni deilir hún skop­mynd sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morgun. Samtökin '78 deildu færslu Þor­bjargar rétt í þessu. Á mynd­inni má sjá hinsegin ein­stak­ling stinga upp á orð­inu „frænd­kyn­stein“ sem nýyrði.

Skop­myndin er eignuð teikn­ar­anum Helga Sig. 

Átti ekki beint von á svona eitr­uðum við­brögðum við sak­lausri nýyrða­sam­keppni. Er hann að líkja hinsegin fólki við...

Posted by Þorbjörg Þor­valds­dóttir on Thursday, August 6, 2015
 

Hinsegin fólki líkt við skrímsli

Í sam­tali við Stundina tekur Þorbjörg sterkar til orða en í færsl­unni og raunar for­dæmir skop­mynd­ina og segir hana birt­ing­ar­mynd þess mót­lætis sem hinsegin fólk stendur oft á tíðum frammi fyrir. „Ég get alla­vega sagt það að mér brá og blöskr­aði. Mér finnst þetta rosa­lega takt­laust af svona stóru blaði og í þess­ari viku. Hvernig þeir nenna að vera leið­in­legu kúkalab­b­arnir sem eyði­leggja alla stemm­ingu,“ segir Þorbjörg sem situr í trún­að­ar­ráði Sam­tak­anna '78  auk þess að skipu­leggja sam­keppn­ina ásamt öðrum.

„Það er eins og það séu engin tak­mörk, kannski á það ekki að vera, eins og umræðan er um tján­ing­ar­frelsi. Maður hefur nú séð ýmis­legt frá þessum teikn­ara. Mér finnst þetta sýna að bar­átt­unni er hvergi nærri lokið, sér­stak­lega fyrir fólk sem fellur fyrir utan þess­arar kyntví­hyggju. Núna erum við til dæmis að biðja fólk um að finna upp á þessum ókyn­greindu frænd­sem­is­orðum og það er greini­lega verið að skjóta á það. Þetta fólk mætir gíf­ur­legu mót­læti og þetta er sterk birt­ing­ar­mynd þess. Það stendur næstum Franken­stein þarna. Maður spyr bara hvað er verið að smætta fólk niður í, ein­hver skrímsli? Þetta er ekki alveg í boði,“ segir Þorbjörg.  

„Hýryrði 2015“

Líkt og fyrr segir vísar grín Morg­un­blaðs­ins til nýyrða­sam­keppni Sam­tak­anna '78 sem nefn­ist Hýryrði 2015. Mark­miðið er að finna íslensk nýyrði fyrir orð sem ekki hafa fengið íslenska þýð­ingu og tengj­ast kyntján­ing, kyn­vit­und og kyn­hneigð. Hægt er taka þátt hér.

„Fjölmörg orð eru til í hinsegin orða­forð­anum sem enn hafa ekki fengið íslenska þýð­ingu, en hinsegin hug­tök og orð end­ur­spegla svo sann­ar­lega þá breidd sem er til staðar í hinsegin sam­fé­lag­inu. Það er mik­il­vægt að við getum öll talað um hinsegin reynslu og hinsegin líf á móð­ur­máli okkar. Samtökin '78 hafa því efnt til nýyrða­sam­keppni, sem fengið hefur heitið hýr­yrði 2015,“ segir á heima­síðu sam­keppn­innar.

Aðeins orðagrín

Stundin ræddi við Helga Sig­urðs­son sem teikn­aði mynd­ina. Hann segir að skop­myndin sé ekki illa meint og aðeins sé um orða­grín að ræða. Spurður út í við­brögðin við mynd­inni segir hann: „Það verður bara að hafa það, en ég kommenta ekk­ert á þessar myndir. Þær verða bara að tala sínu máli. Það er bara þeirra mál ef þau taka þessu illa, þetta er bara grín­mynd,“ segir Helgi. Að hans mati er ekk­ert ósmekk­legt við teikn­ing­una. „Þetta var bara eitt­hvað sem mér fannst fyndið á þessu augna­bliki. Ég vissi alveg að það myndi stuða ein­hvern en þetta er bara sak­laust grín. Þau verða bara að díla við það ef þetta þykir óþægi­leg,“ segir Helgi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár