Fingratalning fjármálaráðherrans stenst ekki

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra státar sig af íslensku lýð­ræði í við­tali við franskan blaða­mann og talar um fjórar kosn­ingar á sjö árum. Útreikn­ingar hans stand­ast hins­vegar ekki. Ekki búið að stað­festa dag­setn­ingu á kom­andi kosn­ingum.

Fingratalning fjármálaráðherrans stenst ekki
Bjarni Bene­dikts­son Bjarni Bene­dikts­son

Sam­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og blaða­manns grín­þátt­ar­ins Le Petit Journal á frönsku sjón­varps­stöð­inni Calal+, hafa vakið athygli íslenskra fjöl­miðla síð­ustu daga. Þar reynir Bjarni meðal ann­ars að skýra fyrir blaða­manni hvernig íslenskt lýð­ræði virkar og leggur sér­staka áherslu það hversu oft Íslend­ingar hafa gengið að kjör­borð­inu síð­ustu ár.

Í því sam­hengi til­tekur hann fjórar alþing­is­kosn­ingar á sjö ára tíma­bili. Ekki fæst hvernig þessi full­yrð­ing Bjarna fæst stað­ist en Íslend­ingar hafa ein­ungis kosið tvisvar til Alþingis á síð­ustu sjö árum, fyrst árið 2009 og aftur 2013. Á sama blaða­manna­fundi sagði Bjarni að rík­is­stjórnin „hygð­ist stefna“ að kosn­ingum í haust. Að þeim kosn­ingum með­töldum er tækni­lega hægt að tala um þrennar kosn­ingar á sjö árum, ekki fernar.

Viðtal franska blaða­manns­ins við Bjarna hefur sem fyrr segir vakið athygli net­verja. Þar spyr hann ráð­herr­ann hvort hann telji að mót­mæl­endur á Aust­ur­velli muni sætta sig við þrá­setu hans á ráð­herra­stóli. Bjarni svarar þessu ekki beint en bendir á að hann hafi þegar til­kynnt um að hann verði áfram ráð­herra.

„En hvernig ætlarðu að gera það, þau munu ekki hætta að mót­mæla fyrr en þú segir af þér?“ Bjarni spyr þá hvernig blaða­mað­ur­inn viti það, hvort ein­hver hafi sagt honum það, og sá síð­ar­nefndi svarar því til að það hafi allir mót­mæl­end­urnir fyrir utan þing­húsið raunar gert. „Þeir eru að kalla eftir afsögn þinni.“

Bjarni segir þvínæst að þeir muni fá að nýta sér kosn­inga­rétt sinn í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum næst­kom­andi haust. „Þannig að þú munt ekki segja af þér og rík­is­stjórnin mun ekki fara frá?“ Bjarni svarar ekki spurn­ing­unni heldur snýr sér að öðrum erlendum blaða­mönnum þar til blaða­maður Le Petit Journal grípur fram í og segir: „Þannig að þetta er lýð­ræðið á Íslandi.“

Bjarni, sem stendur í stig­anum og horfir niður á blaða­mann­inn spyr þá: „Hvaðan ert þú?“ Þegar hann hefur greint frá frönskum upp­runa sínum segir ráð­herr­ann, „gott og vel, það er lýð­ræð­is­ríki,“ og útlistar því næst íslenskar alþing­is­kosn­ingar síð­ustu ára fyrir blaða­mann­inum franska. „Við héldum kosn­ingar 2007, 2009, 2013 og nú 2016, þetta eru fjórar kosn­ingar á sjö árum,“ segir Bjarni sem telur árin með fingrum ann­arrar handar. Sem fyrr segir eru útreikn­ingar fjár­mála­ráð­herr­ans hins­vegar ekki réttir, en hann til­tekur níu ára tíma­bil, ekki sjö, og þar á meðal kosn­ingar sem ekki hafa orðið og ekki verið til­kynnt um hvenær nákvæm­lega þær munu fara fram.

Líkt og komið hefur fram skýrði Bjarni frá því á sama blaða­manna­fundi að rík­is­stjórnin hygð­ist stefna að kosn­ingum næst­kom­andi haust. Það færi hins­vegar eftir gangi þing­mála hvenær þær yrðu. Margir hafa túlkað þessi orð sem óbeina hótun til stjórn­ar­and­stöð­unnar um að vænt­an­legar kosn­ingar séu háðar sam­starfsvilja hennar.

„Við ætlum að stíga við­bótat­ar­skref til þess að mæta kröfum um að virkja lýð­ræðið í land­inu, til þess að kom­ast til móts við þá stöðu sem hefur mynd­ast, og hyggj­umst stefna að því að halda kosn­ingar í haust, stytta kjör­tíma­bilið um eitt lög­gjaf­ar­þing. Nákvæm dag­setn­ing á kosn­ing­unum mun ráð­ast af fram­vindu þing­mál­anna,“ sagði Bjarni þar sem hann stóð í stig­anum. Ýmsir hafa bent á nauð­syn þess að sett verði nákvæm dagstetn­ing á þessar kosn­ingar en skemmst er að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar um evr­ópu­sam­bands­að­ild sem ekk­ert varð úr þrátt fyrir kosn­inga­lof­orð þess efnis af hálfu beggja stjórn­ar­flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

26 mín. lestur

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár