Fimm hafa haft samband við Ómar Ragnarsson með upplýsingar sem sýkna þá sem sakfelldir voru í Geirfinnsmálinu

Frétta­mað­ur­inn Ómar Ragn­ars­son segir fimm hafa haft sam­band við sig með upp­lýs­ingar sem sýkni þá sem sak­felldir voru í Geir­finns­mál­inu. Hann segir ekk­ert þeirra treysta sér til að gefa sig fram undir nafni.

Fimm hafa haft samband við Ómar Ragnarsson með upplýsingar sem sýkna þá sem sakfelldir voru í Geirfinnsmálinu
Ómar Ragn­ars­son Frétta­mað­ur­inn segir fimm hafa haft sam­band við sig með upp­lýs­ingar sem gæti sýknað þau sex ung­menni sem voru á sínum tíma dæmd fyrir aðild að hvarfi mann­anna. Mynd: Friðþjófur Helgason

Frétta­mað­ur­inn Ómar Ragn­ars­son segir í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni að fimm manns hafi haft sam­band við sig í fyllsta trún­aði „vegna Geir­finns­máls­ins og sagst búa yfir vit­neskju sem sýkni þá sem sak­felldir voru.“ Þá segir Ómar að eins og staðan sé í dag þá hefur ekk­ert þeirra treyst sér til þess að gefa sig fram undir nafni.

Hann segir nú von­andi eitt­hvað að ger­ast ef marka má fréttir en Rík­is­út­varpið greindi frá því nú fyrir stundu að ný ábend­ing hafi borist í Guð­mundar- og Geir­finns­málum og að lög­reglu hafi verið falið að rann­saka málið og taka skýrslur.

Þá full­yrðir Rík­is­út­varpið að ábend­ingin eða öllu heldur hvaðan hún er komin þykir þess eðlis að full ástæða sé til að rann­saka hana. Þá er einnig greint frá því að end­ur­upp­töku­nefnd hafi ákveðið að fresta að birta nið­ur­stöðu sína um mögu­lega end­ur­upp­töku Guð­mundar- og Geir­finns­mál­anna og er það talið vegna þess­arar ábend­ingar sem sögð er vera frá „traustum aðila“.

Björn L. Bergsson, for­maður end­ur­upp­töku­nefndar, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að nefndin hafi fengið umrædda ábend­ingu fyrir mill­göngu setts rík­is­sakn­sókn­ara. Þá von­ast Björn einnig til að rann­sókn lög­regl­unnar á þessum nýja anga máls­ins taki ekki meira en nokkrar vikur. Þá kemur einnig fram í frétt­inni að þessi nýja ábend­ing teng­ist ekki hand­töku tveggja manna í sumar sem var gerð í tengslum við rann­sókn á morði Guð­mundar Ein­ars­sonar.

„Við von­um að þetta gangi sem hrað­ast fyr­ir sig þannig að við get­um lokið okk­ar störf­um strax eft­ir ára­mót.“

Sex ung­menni voru á sínum tíma dæmd fyrir aðil að hvarfi þess­ara tveggja manna, Guð­mundar Ein­ars­sonar og Geir­finns Ein­ars­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmál

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár