Farage fagnar sigri „án þess að skoti hafi verið hleypt af“

Bretar eru á leið út úr Evr­ópu­sam­band­inu eftir sögu­frægar kosn­ingar í gær­kvöldi. Nigel Farage, leið­togi breska sjálf­stæð­is­flokks­ins UKIP, fagn­aði sigri með ræðu sem valdið hefur reiði út um allan heim, en bresk þing­kona var skotin til bana af sjálf­stæð­is­sinna á dög­unum.

Farage fagnar sigri „án þess að skoti hafi verið hleypt af“
Umdeildur leið­togi Nigel Farage, leið­togi breska sjálf­stæð­is­flokks­ins eða UKIP, hefur verið gagn­rýndur fyrir orða­val sitt í sig­ur­ræð­unni í nótt. Mynd: UKIP.org

Leiðtogi breska sjálf­stæð­is­flokks­ins UKIP, Nigel Farage, sagði í sig­ur­ræðu sinni í nótt að bar­áttan fyrir útgöngu Breta úr ESB hafi skilað sigri „án þess að skoti hafi verið hleypt af.“ Ræðan er sögð smekk­laus og í besta falli ónær­gætin í ljósi þess að fyrir aðeins viku síðan var þing­mað­ur­inn Jo Cox myrt í bænum Birstall í Bret­landi.

„Við höfum náð þessu. Við höfum náð þessu án þess að hafa þurft að berj­ast, án þess að skoti hafi verið hleypt af. Við höfum náð þessu með fjandi mik­illi vinnu­semi á götum úti,“ sagði Nigel meðal ann­ars í ræðu sinni sem hann hélt í nótt við mik­inn fögnuð við­staddra.

Jo Cox var þing­maður breska verka­manna­flokks­ins og studdi áfram­hald­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu en hún hafði, sásamt fjöl­skyldu sinni  en morð­ingi hennar, Tommy Mair, er sagður hafa öskrað „Britain First“ áður en hann skaut og stakk Jo Cox til bana.

Myrt viku fyrir kosningar
Myrt viku fyrir kosn­ingar Jo Cox, þing­maður breska verka­manna­flokks­ins, studdi áfram­hald­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Hún var myrt fyrir viku síðan af manni sem öskr­aði „Britain First“ áður en hann stakk og skaut Jo Cox til bana.

Þekkt slagorð þjóðernissinna

Britain First er er nafn á hægrisinn­uðum öfga­sam­tökum sem nýlega hvöttu opin­ber­lega til „beinna aðgerða“ gegn kjörnum full­trúum úr röðum múslima en sam­tökin, sem stefna á að verða virkur þátt­tak­andi í breskri póli­tík, hafa for­dæmt morðið á Cox.

Þá er „Britain First“ einnig þekkt slag­orð ýmis konar öfga­hópa sem dvelja á hægri vængnum. Tommy Mair er sagður hafa verið á sama væng, hægri­s­inn­aður og aðhyllt­ist þjóð­ern­is­hyggju og hug­mynda­fræði öfga­hópa.

Nigel Farage hefur verið gagn­rýndur víða um heim eftir að hann lét þessi orð falla og hefur meðal ann­ars verið fjallað um málið í öllum helstu dag­blöðum í Bret­landi. Þá hafa sam­skipta­miðlar logað vegna ummæl­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Evrópumál

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár