Fær enga aðstoð með veiku barni

Selma Klara Gunn­ars­dóttir berst fyrir því að fá son sinn met­inn sem lang­veikt barn svo hún fái aðstoð við umönnun hans. Sonur hennar, Brimir Hrafn, krefst mik­illar umönn­unar en hann er með ofnæmi fyrir allri fæðu og nær­ist ein­ungis í gegnum hnapp á mag­anum.

Fær enga aðstoð með veiku barni
Má ekki borða Brimir Hrafn verður að vera með þennan bak­poka á bak­inu nán­ast allan dag­inn en í honum er nær­ingin hans. Hann fær fimm til sex nær­ing­ar­gjafir á dag og tekur hver gjöf tvo tíma. Mynd: Daníel Starrason

„Ég er búin að vera að berj­ast fyrir því að fá hann met­inn sem lang­veikt barn,“ segir Selma Klara Gunn­ars­dóttir, móðir Brimis Hrafns, sex ára drengs sem er með ofnæmi fyrir allri fæðu og þarf að nær­ast í gegnum sér­stakan hnapp á mag­anum. Brimir krefst mik­illar umönn­unar en Selma fær enga aðstoð því veik­indi sonar hennar falla ekki undir umönn­un­ar­flokk. Hún segir skrítið að hvert og eitt barn sé ekki metið sér­stak­lega þegar jafn stórar ákvarð­anir eru teknar um umönnun þeirra, en ekk­ert annað barn á Íslandi glímir við sams konar veik­indi og Brimir. 

Verið veikur frá fæðingu

Brimir Hrafn fædd­ist í mars 2011 og var kom­inn með sína fyrstu sýk­ingu strax við fæð­ingu; var með sýk­ingu við neglur og fékk fljót­lega lungna­bólgu. „Hann var óvær frá fyrsta degi, létt­ist mjög mikið fyrstu dag­ana, virt­ist ekki nær­ast nógu vel og kastaði mikið upp. Mér var sagt að börn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár