Faðernismálið sem varð að byltingu

DNA próf hefur stað­fest að Sveinn Andri Sveins­son er barns­faðir Rebekku Rós­in­berg. Hún var sautján ára þegar barnið fædd­ist og kærði Svein fyrir tæl­ingu en málið var fellt niður. Umræður um málið leiddu til Beauty tips bylt­ing­ar­innar #þöggun.

Faðernismálið sem varð að byltingu
Sveinn Andri og færslan Stöðu­færsla Guðrúnar Helgu Guð­bjarts­dóttur á lok­aða stelpu­hópnum Beauty tips var upp­hafið af Beauty tips bylt­ing­unni svoköll­uðu. Mynd: Samsett

DNA rann­sókn hefur stað­fest að Sveinn Andri Sveins­son lög­maður er faðir barns Rebekku Rós­in­berg. Saga Rebekku vakti gíf­ur­lega athygli í fyrra eftir að hún steig fram í DV og sagði að hún hefði kynnst honum aðeins sextán ára gömul. Í kjöl­farið hefði hún orðið ólétt og eign­ast barnið sautján ára gömul. Sveinn Andri neit­aði því í sam­tali við DV á sínum tíma að hann væri fað­ir­inn og sagði það byggt á mis­skiln­ingi. „Það er ein­hver mis­skiln­ingur, það er rangt. Ég ætla ekk­ert að vera ræða um þetta við þig. En þetta er ekk­ert rétt. Ég hef ekk­ert um þetta að segja,“ var haft eftir lög­mann­inum. Faðernið hefur nú verið stað­fest með DNA prófi.

Rebekka vildi ekki tjá sig um málið við Stundina, en þau deila um við­ur­kenn­ingu á fað­ern­inu og með­lags­greiðslur. Sveinn Andri vildi ekki heldur tjá sig um málið þegar Stundin óskaði eftir við­brögðum hans nú.

Málið snýr þó ekki aðeins að deilum á milli þeirra, en Beauty tips bylt­ingin #þöggun á rætur sínar að rekja til máls­ins. Fyrr á árinu birti vin­kona Rebekku, Guðrún  Helga Guð­bjarts­dóttir, stöðu­upp­færslu í lok­uðum hópi kvenna á Facebook sem kall­ast Beauty tips, þar sem hún spurði hvort ein­hver þar hefði „lent í Sveini Andra“.

Af því til­efni sagði Rebekka í sam­tali við Stundina að mark­mið færsl­unnar hefði verið að safna sönn­un­ar­gögnum fyrir nýja kæru vegna meintrar tæl­ingar Sveins Andra. Hún kærði hann á sínum tíma fyrir tæl­ingu gegn ólög­ráða ein­stak­lingi en málið var fellt niður, vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum.

Upphaf Beauty tips byltingar

Fréttir voru sagðar af stöðu­upp­færslu Guðrúnar Helgu og í kjöl­farið var fjar­lægðu stjórn­endur síð­unnar þessa umdeildu færslu. Meðlimum síð­unnar mis­bauð sú aðgerð og í kjöl­farið hrúg­uð­ust inn per­sónu­legar frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi undir myllu­merk­inu #þöggun.

Edda Ýr Garð­ars­dóttir mynd­list­ar­kenn­ari bjó stuttu síðar til gular og app­el­sínugular myndir sem urðu tákn­mynd umræð­unnar. Fjöl­margir Íslend­ingar breyttu for­síðu­myndum sínum á Facebook til að sýna bar­átt­unni gegn þöggun stuðn­ing í verki.

Málið vakti athygli utan land­steina og var meðal ann­ars fjallað um vit­und­ar­vakn­ing­una í banda­ríska tíma­rit­inu New Yorker.

Þá hélt Andrés Ingi Jónsson, vara­þing­maður Vinstri grænna, ræðu í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi í sumar þar sem hann ræddi Beauty tips bylt­ing­una.  

„Umræðan barst okkur körlunum síðan þegar sögur og myndir tóku að birt­ast á sam­fé­lags­miðlum. Þolendur ofbeldis merktu sig app­el­sínu­gulum and­litum. Gul and­lit urðu tákn­mynd allra hinna, sem þekkja þolendur ofbeldis. App­el­sínu­gulu and­litin voru ótrú­lega mörg. Svo mörg, að mér leið helst eins og nátt­úru­ham­farir hefðu orðið. Í nátt­úru­ham­förum hefðu við­brögðin ekki staðið á sér. Þá skipu­leggja stjórn­völd fjölda­hjálp­ar­mið­stöðvar, þau bretta upp ermarnar og taka til óspilltra mál­anna. Þau laga það sem lagað verður. En hver voru við­brögðin þegar þagn­ar­múr­inn brast? Þau voru lítil. Að minnsta kosti ekki í neinu sam­ræmi við umfang vand­ans,“ sagði Andrés.

Krafðist 10 milljóna

Líkt og fyrr segir var fyrst greint frá mál­inu í DV í fyrra þegar Rebekka lýsti sam­skiptum sínum við Svein Andra, sem hún sagð­ist hafa kynnst þegar hún var á fyrsta ári í mennta­skóla.

Sveinn Andri hót­aði að stefna rit­stjóra DV og blaða­manni DV vegna umfjöll­un­ar­innar. Þá krafð­ist hann þess að fá tíu millj­ónir króna í skaða­bætur.  

Á meðal þess sem fram kom í umfjöllun DV var frá­sögn Rebekku af því hvernig Sveinn Andri brást við þegar hún sagði honum að hún væri barns­haf­andi. „Hann trúði mér ekki. Ég reyndar sagði honum þetta 1. apríl og hann hélt að þetta væri apr­ílgabb. Þegar hann átt­aði sig á því að þetta væri satt þá sagði hann við mig að ég yrði að fara í fóst­ur­eyð­ingu. Hann sagð­ist ætla að kaupa handa mér ferð til Dan­merkur. Ég ólst þar upp og var búin að segja honum að ég elskaði þann stað meira en allt og lang­aði að fara aftur. Hann bauðst til þess að borga fyrir mig út ef ég myndi fara og láta eyða fóstr­inu. Hann vissi nákvæm­lega hvaða takka hann ætti að ýta á,“ var haft Rebekku í DV. Sveinn Andri greiddi engu að síður með­lag með barn­inu til að byrja með og lýsti sig til­bú­inn til þess að finna lausn.

Þá sagð­ist hún hafa verið svo brotin eftir sam­skiptin við Svein Andra að hún hefði þurft á sér­fræði­að­stoð að halda. Á sínum tíma hafi henni þótt spenn­andi að hann væri þekktur, á fínum bíl og í flottu ein­býl­is­húsi. Hún hafi hins vegar óþroskuð og hann hefði not­fært sér yfir­burða­stöðu sína gagn­vart henni. Á þeim for­sendum hefði hún ákveðið að kæra hann fyrir tæl­ingu.

Í sama við­tali ítrek­aði Rebekka að það eina sem hún vildi væri rétt­læti. „Ég vil bara fá rétt­læti fyrir mig og son minn. Það á eng­inn að koma svona fram og núna veit ég að þetta var ekki mér að kenna. Ég var bara barn. Ég á ekki að þurfa bera þessa skömm heldur hann.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár