Eygló segir aðgerðir stjórnvalda ráðast af sjálfboðavinnu almennings – Árni Páll varar við „ölmusuvæðingu“

Félags­mála­ráð­herra hvetur almenn­ing til að bjóða fram aðstoð sína og for­sæt­is­ráð­herra segir óraun­hæft að Ísland taki á móti fimm þús­und flótta­mönnum. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir þau harð­lega.

Eygló segir aðgerðir stjórnvalda ráðast af sjálfboðavinnu almennings – Árni Páll varar við „ölmusuvæðingu“

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, segir að það hve mörgum flótta­mönnum Ísland geti tekið á móti ráð­ist af sjálf­boða­vinnu fólks. Þetta kom fram í frétta­tíma Stöðvar 2 í gær­kvöldi.

„Núna þurfum við ein­fald­lega á því að halda að þær þús­undir sem hafa stigið fram og hvatt okkur áfram til góðra verka hjálpi okkur við verk­efnið, hafi sam­band við okkur í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, hafi sam­band við Rauða kross­inn og íhugi það, og spyrji ein­fald­lega hvað það geti gert til að hjálpa til,“ sagði Eygló í við­tali.

„Ef við náum að taka höndum saman hvað þetta varðar, þá þurfum við ekki endi­lega að setja ein­hverja hámarks­tölu á fjölda flótta­manna sem við getum tekið við“

Kallar eftir sjálfboðaliðum

Aðspurð hversu mörgum flótta­mönnum stjórn­völd gætu tekið á móti svar­aði Eygló: „Það bygg­ist einmitt akkúrat á þessu. Ef þú ert með laust starf að hafa sam­band við Rauða kross­inn eða vel­ferð­ar­ráðu­neytið. Ef þú ert með íbúð til leigu, að hafa sam­band, því við erum nú þegar með fólk í land­inu sem þarf á þess­ari aðstoð að halda. Ertu til­bú­inn að bjóða þig fram sem sjálf­boða­liði og mæta og hjálpa til með að flótta­menn geti lært á íslenska banka­kerfið sem er ekki ein­falt? Aðstoð við ein­fald­lega bara mat­ar­inn­kaup og marg­vís­leg önnur verk­efni sem þarf að vinna. Og ef að þetta allt, ef við náum að taka höndum saman hvað þetta varðar, þá þurfum við ekki endi­lega að setja ein­hverja hámarks­tölu á fjölda flótta­manna sem við getum tekið við.“

Gagnrýnir ölmusuvæðingu

Árni Páll Árnason for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýnir Eygló harð­lega fyrir að ölm­usu­væða aðstoð við flótta­fólk. „Það er vissu­lega mik­il­vægt að almenn­ingur styðji við mót­töku flótta­manna með sjálf­boða­starfi, eins og rík hefð er fyrir hér á landi. En stjórn­völd geta ekki afneitað ábyrgð sinni á mót­töku flótta­manna, eins og ráð­herr­ann gerir. Þetta er sam­fé­lags­legt verk­efni, en ekki verk­efni sem hægt er að ölm­usu­væða,“ skrif­aði Árni Páll í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær­kvöldi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár