Sverrir Þór finnst ekki í fangelsi í Brasilíu

Sverrir Þór Gunn­ars­son, Sveddi tönn, sem í nóv­em­ber árið 2012 var dæmdur í 22 ára fang­elsi í Brasilíu fyrir smygl á tæpum 50 þús­und e-töflum og er tal­inn einn af höf­uð­paur­unum í alþjóð­legum smygl­hring, virð­ist vera horf­inn í Suður-Ameríku. Einn af þeim sem sagður er sam­starfs­maður Sverris og tal­inn hafa mik­il­vægar upp­lýs­ingar um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar, Guð­mundur Spar­takus Ómarsson, fór af landi brott á dög­unum.

Sverrir Þór finnst ekki í fangelsi í Brasilíu
Sverrir Þór Gunn­ars­son Einn af þekkt­ustu glæpa­mönnum Íslands­sög­unnar, Sveddi Tönn, var alsæll með að hafa trú­lofast íslenskri unn­ustu sinni en hann sýndi hring­inn þar sem hann sat í gæslu­varð­haldi vegna smylgs á tæpum 50 þús­und e-töflum. Sverrir stóð fast á því að hann yrði sýkn­aður en allt kom fyrir ekki. Hann var dæmdur í 22 ára fang­elsi og trú­lof­unin rann út í sand­inn.

Sverrir Þór Gunn­ars­son, 44 ára gam­all Íslend­ingur sem hefur á und­an­förnum árum verið búsettur í Suður-Ameríku, finnst ekki í fang­elsi í Brasilíu.

Sverrir Þór ætti undir venju­legum kring­um­stæðum að vera staddur í fanga­klefa í fang­elsi rétt fyrir utan Rio de Janeiro að afplána 22 ára dóm vegna smygls á tæpum 50 þús­und e-töflum. Dóminn fékk Sverrir Þór árið 2012 en fjöldi e-tafln­anna var fjórð­ungur alls þess sem brasil­ísk stjórn­völd höfðu lagt hald á árið áður. Stundin hefur á und­an­förnum vikum reynt að ná tali af Sverri Þór í tengslum við afhjúp­andi umfjöllun um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar sem birt­ist í síð­asta tölu­blaði. Friðrik flaug til Suður-Ameríku, á slóðir Sverris Þórs og fleiri Íslend­inga, árið 2013 með það fyrir augum að stunda eit­ur­lyfja­við­skipti. Ekkert hefur spurst til hans síðan í mars sama ár, 2013.

Í umfjöllun Stund­ar­innar kom meðal ann­ars fram að Íslend­ingur að nafni Guð­mundur Spar­takus Ómarsson væri tal­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Friðriks Kristjánssonar

RannsóknHvarf Friðriks Kristjánssonar

Farvegur fíkni­efn­anna end­aði með hryll­ingi

Friðrik Krist­jáns­son, vin­sæll og efni­legur ungur maður úr Garðabæ, hvarf spor­laust í Paragvæ eftir að hafa ánetj­ast fíkni­efnum. Íslend­ingur, sem búsettur var í Amster­dam, greindi lög­reglu frá því að hann hefði séð ónefndan Íslend­ing halda á afskornu höfði hans í sam­tali á Skype og hrósa sér af því að hafa myrt hann. Lög­reglan í Reykja­vík hefur nú hand­tekið og yfir­heyrt einn mann vegna máls­ins.

Myndband38 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár