Mynd: Bragi Þór Jósefsson

Engir aðrir þingmenn segjast vera tengdir skattaskjólum

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son eru meðal þeirra þing­manna sem ekki hafa svarað spurn­ingum um eignir sínar erlendis. Enginn þeirra þing­manna sem seg­ist eiga eignir erlendis á eignir í skatta­skjóli. Stundin spurði alla þing­menn á Alþingi um eignir þeirra erlendis og eru sára­fáir sem ein­hverjar eignir eiga utan Íslands.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Sigurður Ingi Jóhann­es­son eru meðal þeirra þing­manna sem ekki hafa svarað spurn­ingum Stund­ar­innar um eignir sínar eða félaga í sinni eigu erlendis. Lang­flestir þing­manna hafa hins vegar svarað spurn­ingum blaðs­ins um eigna­stöðu sína erlendis og eiga lang­flestir sem hafa svarað engar eignir erlendis og eng­inn lýsti kröfum í þrotabú föllnu bank­anna þriggja.

Nokkrir þing­menn eiga eignir erlendis, til dæmis Val­gerður Bjarna­dóttir og Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, en þar um að ræða líf­eyr­is­sjóðs­rétt­indi í belgískum banka í fyrra til­fell­inu og hluta­bréf í London í því seinna. Enginn þing­maður sem hefur svarað spurn­ingum Stund­ar­innar hefur sagt að hann eða hún eigi félag á lág­skatta­svæði eða skatta­skjóli.

Þrír þingmenn tengjast skattaskjólum

Eins og staðan er núna, út frá þessum svörum, þá liggur fyrir að það eru þrír ráð­herrar sem tengj­ast skatta­skjólum, líkt og komið hefur fram. Þau Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Bjarni Bene­dikts­son og Ólöf Nordal. Ólöf er hins vegar ekki þing­maður heldur utan­þings­ráð­herra. Öll héldu þau þessum tengslum leyndum þar til fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Reykja­vík Media ehf. og blaða­manna­sam­tökin ICIJ greindu frá þeim fyrr í mán­uð­inum eftir margra mán­aða rann­sókn­ar­vinnu. 

Sig­mundur Davíð, eða félagið Wintris Inc. á Tortólu sem hann átti hlut í þar til í árs­lok 2009, er eini þing­mað­ur­inn sem lýst kröfum í bú föllnu bank­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár